Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1929, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.04.1929, Blaðsíða 11
SKINPAXI 5') og menn, í Reykjavík sjálfri — að vísu ágætt fólk — þá teldi jeg ekki síður vænlegt og viðeigandi, að eitt- hvað af fólki óti á landi, t. d. eitt eða tvent úr hverjum hinna landsfjórðunganna, lielst bæði karlar og konur, væru í slíkri forstöðu- og undirbúningsnefnd. Með því væri þó fengin lítið eitt meiri von um lifandi aðgerðir. Að ráða fólk til þessarar forgöngu, með brjefaskriftum eingöngu, mun gefast misjafnlega, og framkvæmdir sýslunefndanda hygg jeg líka að geti borið til beggja hliða. Ungmennafjelögin hafa sambandsþing í vor, cftir því sem ákveðið er. Þar lilýtur að takast til yfirvegunar, hverjar aðgerðir þau muni geta veitt í þessu efni, á þeim tinia, sem þá verður eftir. — Siðasta sambands- þing leit svo á, að Heimilisiðnaðarfjelagið ætti að hafa sem mesta forgöngu við sýninguna. Þó i samráði við annan útbreiddari fjclagsskap, eins og ungmennafjelög- in, kvenfjelögin o. fl. Ættu ungmennafjelögin svo að rjetta stuðning sinn til, eftir megni. Nú hafa ungmenna- fjelögin, allt til þessa, að mestu beðið átekta — beðið þessarar forgöngu. Ekki síst að sýningin væri opinber- lega afráðin og auglýst. — Þó er það enn, undir flest- um kringumstæðum, sjálfsagt að ungmennafjelögin eiga að gera það, sem þeim verður unt, til þess að sýningin megi takast sem skammlausast, (ef hún verður, sem ennþá skal gert ráð fvrir.) Þau standa betur að vígi, en nokkur annar fjelagsskapur hjer á landi, fyrir það, hve útbreidd þau eru, og mest um sveitir landsins. Þau höfðu og hafist handa með að styðja íslenska heima- iðju, nokkru áður en Heimilisiðnaðarfélag íslands var stofnað. Ef aö Heimilisiðnaríjelagið vill hagnýta sjer aðstöðu ungmennafjelaganna, og þá samvinnu, sem þau geta i tje látið íyrir þelta mál, — og því treysti eg fastlega, þá er það vafalaust hinn mesti vinningur. En bæði ung- mennafjelögum og öðrum er sá skaðinn mestur, hvað nú er stuttur timi til stefnu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.