Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1929, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.11.1929, Blaðsíða 5
SKINFAXI 101 útlendingur að geta með rjettu hælst um yfir þvi, aö Íslendingar þori ekki að horfa framan i þá með fullri einurð. Vestur-fslendingar ætla að fjöimenna á hátiðahöldin. Sjálfsagt ber oss að taka vel á móti þeim og gera þeim ferð þeirra sem ánægjulegasta. Þó viljutn viö benda ungmennafjeiögum á, að gæta þess vandlega að missa ekki trú á gamla íslandi þó lýsingar ianda okkar að vestan kunni að vera fagrar og heiilandi. Þess ber að gæta, að þeir landar vorir, sem verða gestir okkar næsta ár, verða mestmegnis þeir, setn notið hafa gæða .Vesturheims og liðið vel þar, því gæti frásögn þeirra orðið lituð og valdið margvisiegum vonbrigðum, ef hlaupið yrði eftir henni. íslenska þjóðin er altof mannfá til þess að notfæra sjer alia mögulegleika sem fósturjörðin hefir að bjóða. Þess vegna má enginn svifta hana kröftum sinum með þvi að flytja af landi burt. Trúum á landið okkar fagra og góða, og treystum böndin. Við höfum nú i stuttu máli drepið á þau mál, setn við teljum að beri að vinna aðallega að á yíirstand- andi starfsári. Þó má ekki gleyma að halda i horfinu með önnur mál ungmennafjelagsskaparins. Viljum við sjerstaklega nefna skógræktarmál, bindindismál og hreinsun móðurmálsins. Treystandi ykkur, góðir ungmennafjeiagar, tii alls hins” besta,| óskum við að starfsárið, sem nú er byrjað, verði ykkur öllum ánægjulegt og heillaríkt. Kristján Karisson. Guðm. Jónsson frá Mosdal. Sigurður Greipsson.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.