Skinfaxi - 01.11.1929, Blaðsíða 15
SKINPAXI
m
VII. 800 metra hlaup. 4. Þátttakendur. 1. verðlaun
hlaut Ásgeir H. Quðmundsson (Ó. P.) í annað sinn.
Hraði: 2 mín. 43 sek. Vindur var allhvass inóti hlaup-
uruin I þessu hlaupi og það því erfiðara en ella.
VIII. Hástökk. 8 þátttakendur. Árni Böðvarsson
(O. P.) og Magnús Sigurbjörnsson (U. D.) voru dæmdir
jafnir og þvi engin verðlaun veitt i Hástökki. Stökk-
hæð: 1.60 m.
W IX. Langstökk. 6 þátttakendur. 1. verðlaun hlaut
Quðm. Sumarliðason (Ó. P.) Stökklengd: 5.44 m.
X. Reiptog. U. D. og Ó. P. keptu við Stj. og Gr.(
gengu flokkar jafnir frá leik.
XI. Ræða: Hallgr. Jónsson. Efni: Vormenn íslands
og verkefni þeirra.
XII. Ræða: Sv. Gunnlaugsson. Efni: Minni kvenna.
Um kvöldið las Markús Torfason upp úrslit kapp-
leikja, og ljet fylgja þakkar- og hvatningaorð til iþrótta-
manna.
Vfsir til iðnsýningar var á mótinu. Var til ætlast
að allir hreppar sýslunnar sendu muni til sýningar, en
þátttaka var daufleg. Þeir munir, scm sýndir voru,
virtust yfirleitt mjög vel gerðir,
Öðru hvoru um daginn voru sungin ýms algeng
kvæði, svo sem fyrir og eftir ræður, og að síðustu var
mótinu slitið meft þvt að allir sungu: „Ó, fögur er vor
fósturjörð11. Stfginn var slðan dans í rúma klukkustund.
Á mótinu munu hafa verið á fjórða hundrað manns.
Veður var þurt og gott um daginn, en nokkur stormur
um tíma, setn lægði með kvöldinu, Varð þá mörgum
litið yfir hina blómlegu og fögru sveit, Saurbæinn, sem
Ijómaði við kvöldskininu, og mun sú kveðja hafa fært
hugljúfan blæ yfir þennan samkomudag allrar sýslunnar
og þá jafnframt hjálpað til að geyma ánægjulegar end-
urminningar frá mótinu, sem í fám orðum sagt fór ágæt-
lega tram.
Hallgr. Jónsson
ritari hjeraðsiatnb. U. M. P. D.