Skinfaxi - 01.11.1929, Blaðsíða 13
SKINFAXI
109
var myndasala. — Jeg sá fyrir skömmu mynd af J. S.
forseta, er mjer þótti taka langt fram öðrum myndum
af honum. Hjónin, sem myndina áttu, sýndu þá velvild
að lána hana, enda þótt hún væri brúðkaupsgjöf tii
þeirra, og nú hefi jeg látið prenta eftir henni mjög
vandaða mynd, sem seld verður, meðan upplagið
endist.
Þar sem þetta er, að allra dómi sem sjeð hafa,
langbesta myndin, sem til er af forsetanum, tel jeg víst
að marga fýsi að eignast hana, enda ætti hún, i við-
eigandi umgjörð, að prýða hvert heimili á landinu, en
sist ætti hana að vanta hjer á Vestfjörðum. — Seld
verður myndin alment á kr. 3.00, en vilji einhver nota
tækifærið til þess að auðga um ieið Menningarsjóðinti,
er hærra gjald með þökkum þegið.
Óskasl þá jafnframt að þeir, sem kaupa myndina
dýrara verði láti nafns síns getið svo hægt sje að skrá
þá sem gefendur.
Þau ungmennafjelög sem kynnu að viija fá myndina
senda til útsölu, óska jeg að láti mig vita um það hið
fyrsta.
Næsta ár hljóta að verða vorleysingar miklar i öll-
um framfaramálum þjóðarinnar. — Sumarboði nýs þús-
und ára ríkis getur ekki verið smávirkur.
Þá er það að jeg vænti að verulegt skrið komist á
hjeraðsskólatnál okkar Vestfirðinganna.
Minning þess manns, sem við eigum endurfundið
sjálfstæði okkar að þakka, ætti að vega mikið fyrir
það mál.
Með því að auka Menningarsjóðinn er hjeraðsskóla-
málinu Iið ljeð, en með því hvorutveggja er viðhaldið
minningu þess mætasta manns, er þjóðin hefir alið.
Jón Sigurðsson á að lifa enn og æ f dáðrikum fram-
kvæmdum, eins og þá hann lifði hjer lífi sínu; Það er
helgasta skylda okkar, sem eigum að halda minningu
hatis á iofti, að sjá um að svo verði.