Skinfaxi - 01.11.1929, Síða 9
SKiNPAXl
105
sannspá, um að hjer yrði jafnan matföng á boðstólum
handa hjeraðsbúum.
Skutulseyrarnafnið felur í sjer djúpa merkingu, bend-
ingu og fyrirheit staðnum til handa, sem vel hafa rætst.
Það nafn ber að taka upp og hafa i heiðri.
Kristján Jónsson frá Garðsstöðum.
Vínbindindi.
Eitt af höfuðinálum ungmennafélaganna: vinbindindi,
er jafnframt mál sem, valdið hefir allmiklum skoðana-
mtin innan fjelagsskaparins og þó hefir það ekki verið
máð af stefnuskrá hans. Hvers vegna það hefir ekki
verið gert, ætla jeg að reyna að sýna fram á hjer á
eftir.
Ungmennafjelagsskapurinn er þess eðlis, að hann
verður altaf að gæta þess, að liafa eitthvað það á
stefnuskrá sinni, setn sýni Ijóslega, að hann er fjelags-
skapur óspiltrar æsku. Markmið fjelagsskaparins er f
stuttu máli það, að þroska fjelaga sína og búa þá
undir þátttöku f strfði lífsins. Til þess að slikt megi
takast svo að gagni komi, verður undirstaðan, sem alt
er bygt á, að vera lieilsteypt, trygg og íraust, svo að
hún standi hvað sem á gengur. Hún verður að vera
sýnilegt tákn þeirra hugsjóna, sem fjelagsskapurinn
berst fyrir og jafnframt verður hún að sýna ljóst þann
anda sem ríkir innan fjelagsskaparins. Loks verður
hún að benda til þeirra verka, sent fjelagsskapurinn
sjerstaklega ætlar að vinna að.
í hvaða satnbandi stendur nú bindindisheit ung-
mennafjelaganna við það, sem hjer hefir verið bent á?
Auðvelt er að sýna fratn á það. Óspilt æska mun
fyrst og fremst koma auga á það, sem miður fer á
þeim iímutn sem hún kemur til vits og ára. Verður