Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1930, Qupperneq 11

Skinfaxi - 01.04.1930, Qupperneq 11
SKlíiFAXI 107 Tindirorpin.“ Og hann heldur, „aö eftir liundraö ár eða skemmri tíma, þegar einhver, sem afla vildi fósturjörðinni fróðleiks og heiðurs með rannsókn fornra, norrænna minnja, vildi vita, hvernig kvæði þessi hafa verið, er sennilegast, að hann finndi engar leifar eftir af þeim, nema þau séu nú skrif- uð upp. Og einmitt vegna slíkra eftirgrennslana tel eg, að þau •eigi að vera til og geymast — í sinni núverandi mynd — i opinberu bókasafni." Þá mætti spyrja, hvi þessir menn fórnuðu svo miklum tíma ■og mikilli vinnu í það, að rita kvæðin upp. Svarið hlýtur að verða: Þeir gátu ekki annað. Kvæðin voru samrunnin sálar- iífi þeirra og búningur kvæðanna var móðurmál þeirra: Mark þeirra og mið var það eitt: að varðveita svo lengi, sem verða mætti. Þeir elskuðu kvæðin og málið, eins og móðir elskar barn sitt. Og móðirin elskar barnið eigi minnst, þegar jiað er veikt. Getur verið, að hún hjúkri því þá bezt og fórni því mestu af heitri ást sinni, er hún óttast, að því vcrði ekki lífs auðið. Einn samtíðarmaður þeirra, sem að framan eru nefndir, var þó fær um, að koma af stað hreyfingu manna i milli. Það var kappinn og skáldið Nolseyjar-Páll*). Hann sigldi viða um heim, á yngri árum sínum, og var í Bandaríkjunum 1793—’98. Þegar han kom heim aftur, tók liann sér fyrir hendur, að fá einokunarverzlunina afnumda. Hann fékk flokk I'æreyinga til fylgis við sig, og lá við, að hann kæmi ætlun sinni fram. En þá brast á sjö ára stríðið milli Ðanmerkur og Englands og allar hugsanir uin frjálsa verzlun urðu að engu. 1808 fórst Páll á leið frá Englandi til Færeyja með vörur. En kvæðin, sem liann orti, urðu vinsæl af samtið hans, og þau lifa manna á meðal enn í dag. Hugsunin um afnám einokunarinnar fjar- aði út eftir dauða hans. í þenna mund varð oss margt að meini. 1804 var lærði skólinn i Þórshöfn lagður niður og 1816 fór lögþingið sömu leið. Það leit út fyrir, að þjóð vor ætti enga lífs von sem Færeyingar. III. Um 1840 og árin þar á eftir komu fram merkismenn i sögu vorri. Nefndir skulu Niels Wintlier, Napoleon Nolsöe og Ven- sil Hammershaimb. Þessir þrír Færeyingar trúðu á þjóðina *) Sjá „Nolseyjar-Páll, þjóðlietja Færeyinga“ eftir Árna Pálsson, í Skírni 1925.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.