Skinfaxi - 01.04.1930, Blaðsíða 34
130
SKINFAXI
— Æsisögur og annað bókarusl á ekki að sjást i söfnum ung-
mennafélaga.
U. M. F. eru skólar æskulýðsins, þeir einu, er fjöldi manna
á kost á að njóta, og áhrifameiri um menningu og gihli þjóð-
ar vorrar, en almenningi er ljóst. Hér hefir ilrepið verið á
helztu atriði um fræðistörf þeirra, og mætti þar mörgu við'
bæta. En vonandi getur það, sem hér er mælt, reynst einhverj-
um nytsöm bending.
Héðan og handan.
Hátíðarminnjar.
Margir minnast Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, siðan
hann ferðaðist meðal ungmennafélaga, kenndi íþróttir og
flutti fyrirlestra. Nii er hann, sem kunnugt er, kominn i röð
fremstu listamanna vorra, myndhöggvari og málari. Guð-
mundur hefir gert skildi þá, er hér birtast myndir af, til
minnja um Alþingishátíð. Sýnir annar helztu forgöngumenn
Alþingisstofnunar, þá Úlfljót, Grím geitskör og Þorleif
spaka; stendur á honum: „Með lögum skal land byggja. 930
—1930“. Á hinum er norrænn drekahnútur og „Alþingi vas
sett at ráþi Úlfljóts ok allra landsmanna". Skildirnir eru
gerðir úr kopar, 11 sm. í þvermál og kosta 15 kr. hvor. Fá
má og efnismeiri skjöld með báðum myndum, sinni á hvorri
hlið, fyrir 25 krónur.
Þá hefir Guðmundur gert nokkuð af „raderingum" (æti-