Skinfaxi - 01.04.1930, Qupperneq 23
SKINFAXI
119
Ríkarður Jónsson: Tröllamóðir.
hafnir, svo sem barnaskirnir, hjónavígslur o. þ. h., að fá
verður leyfi biskups í hvert skifti, sem foreldrar vilja láta
skíra börn sín á færeysku, eða ungt fólk vill ganga í hjóna-
band og fá vígslu á móðurmálinu.
Ekkert er þó til fyrirstöðu ])ví, að framanneíndar kirkju-
legar athafnir megi fram fara í kirkjum vorum á sænsku,
norsku og víst á islenzku líka, og það án þess að spyrja bisk-
up leyfis. — Órannsakanlegur er sá vísdómur, er skapað hefir
þessi lög vor.
Helgisiðirnir í færeyskri þýðingu — þeir eru nú prentaðir
— og fjöldi færeyskra sálma hafa legið í mörg ár lijá biskupi
og kennslumálaráðherra til löggildingar, en hún hefir ekki
fengizt enn.
í sama mund og baráttan hefir staðið um móðurmálið, hef-
ir einnig margt verið gert til þess að tryggja grundvöll vorr-
ar færeysku þjóðmenningar, og duglegir menn hafa leyst þar
gott verk af hendi. Er fyrstan að nefna vísindamanninn dr.
Jakob Jakobsen. Hann gaf út „Færöske Folkesagn og Æven-
fyr“, sem er stór bók, XLVII + 648 bls. Þó að nafnið sé
danskt, er allt innihald hcnnar á færeysku, nema formálinn.