Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 4
Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, ávarpar 25. sambandsþing- UMFI. Hann ílutti ung- mennafélagshreyfingunni þakkir fyrir unnin störf landi og þjóö til heilla og ílutti UMFl árnaðaróskir í tilefni afmælisins. æskulýðsnefnd, og frá fjáröflunar- leiðum, er nú þyrfti að ræða um í sambandi við væntanlega æskulýðs- löggjöf. Að því búnu var umræða um skýrslu stjórnarinnar og var hún síð- an samþykkt með lófataki. IV. Landgræðsla Framsögumaður Jóhannes Sigmunds- son sagði frá ferð ungmennafélaga úr Skarphéðni inn í óbyggðir s. 1. sumar, er þeir í samvinnu við Land- græðslu ríkisins sáðu grasfræi og á- burði á örfoka svæði. Eftir að hafa talað nokkur hvatningarorð til þings- ins flutti hann tillögu um land- græðslu. V. Landsmótið að Eiðum 1968 Framsögumaður Jón Ólafsson skýrði frá gangi mála. Nýlega hefði verið send stjórn UMFf greinargerð um gang mála hjá landsmótsnefnd. 1 sumar hefur verið unnið að vallar- gerð, gamli völlurinn unninn upp að nýju auk þess tveir aðrir minni vellir. Þá er hafin undirbúningur hópsýn- inga og allt er nú að fá á sig fullnað- arform, en á næstunni verður gengið frá sundaðstöðu. Undir þessum lið tók til máls Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi, er benti á nauðsyn þess að héraðssam- böndin hjálpuðu til við að leggja til starfsfólk til starfa við íþróttakeppn- 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.