Skinfaxi - 01.11.1967, Page 10
Steffán Jasonarson
Manngildi æskunnar skiptir
mestu máli
Á Skógarhátíð UÍA s. 1. sumar flutti hinn góðkunni ungmenna-
félagsfrömuður Stefán Jasonarson ræðu. Skinfaxi fór þess á
leit við Stefán að fá að birta ræðuna, og sendi Stefán okkur
hana, nokkuð stytta.
Góðir tilheyrendur.
Gleðilega hátíð.
Ég var svo heppinn að eiga þess kost
að dvelja með forystumönnum Ung-
menna- og íþróttasambands Austur-
lands í 2 daga og fylgjast með störf-
um þeirra, þegar þeir héldu ársþing
sitt að Eiðum á s. 1. hausti.
Ég hafði aldrei áður komið í þetta
byggðarlag. Mér var það því nokkur
eftirvænting, er Snarfaxi Flugfélags
Islands, steypti sér úr skýjaþykkn-
inu í 15000 feta hæð. — Snæviþakið
hálendið var að baki en framundan
var Fljótsdalshérað með sín sérstæðu
einkenni, borið saman við önnur
byggðarlög: Lagarfljót langt og
breitt. — Hallormsstaðaskógur, með
sína margbreytilegu haustliti, Hall-
ormsstaður — og búsældarleg bænda-
býli blöstu við augum.
Og seinna, þegar fast land var
undir fótum, minntist ég viðburða-
ríkra daga meðal ungmennafélaga úr
þessu byggðarlagi.
Ég fylgdist með umræðum ykkar
um félagsmálin og hvernig þið brugð-
ust við ýmiss konar vanda. Ég fylgd-
ist með áætlunum ykkar varðandi
verkefni framtíðarinnar. Og ég minn-
ist gestrisni ykkar, góðir ungmenna-
félagar. Ég minnist þess er einn úr
ykkar hópi, íþrótta- og æskulýðsleið-
toginn síungi, Ármann Halldórsson,
tók okkur ferðalagana á sína arma
og sýndi okkur Eiðaskóla, þetta
fræga menntasetur, þar sem aust-
firsk æska hefur unnið og lært á liðn-
um áratugum. Að síðustu lét þessi
ágæti æskulýðsfrömuður son sinn
aka okkur hingað í Hallormsstaða-
skóg, þar sem Sigurður Blöndal skóg-
arvörður gerðist okkur fræðari og
leiðsögumaður. Hann kann skil á
skógarfræðinni hann Sigurður Blönd-
al. — Jafnvel bóndi sem er fæddur og
uppalinn á flatlendinu í Flóanum og
verður sjálfsagt alla sína búskapar-
tíð að fylla skógi sína eigin skógrækt-
argirðingu, sem aðeins þekur 1 hekt-
ara lands, — fær ekki orða bundist
yfir frjómagni austlenzku moldarinn-
ar, þegar hann lítur Guttormslund í
fyrsta sinn. Og Atlavík á sér enga
líka á landi hér.
Ef til vill er mér þó minnisstæðast,
10
SKINFAXI