Skinfaxi - 01.11.1967, Side 16
þjóðfélagsháttum hefur starfsgrund-
völlur félagsskaparins víða raskast
verulega.
Til að mæta slíkum breytingum
leggur nefndin til að ungmennafélag-
ar þessara landsvæða athugi gaum-
gæfilega hvort ekki sé æskilegt að
félagssvæðin fylgi t. d. skólahverfum
eða í framtíðinni stækkun sveitarfé-
laganna.
Jafnhliða því væri starfandi ung-
mennafélag í efri bekkjum skólanna
og mætti vænta þess að þeir ungling-
ar héldu síðan hópinn eftir að námi
lyki og yrðu stofn að fjölmennara og
öflugra ungmennafélagi en annars
gæti orðið.
1 þéttbýlinu væri sami háttur á
hafður, að þar væru deildir ung-
mennafélaga stofnaðar í efri bekkj-
um skólanna þar sem áhugi væri fyr-
ir slíku.
Innan þessara unglingadeilda rúm-
ast fjölmörg verkefni ungmennafé-
lagshreyfingarinnar. Æskilegt væri
til dæmis að koma þar upp sérstöku
fundarformi, föstu í formi þar sem
allir meðlimir yrðu virkir þátttakend-
ur. Innan þessara deilda færu fram
unglingakeppnir í iþróttum, innbyrð-
is keppnir innan héraðssambanda þar
sem keppt væri eftir stigatöflu.
Við skipulagningu þessara ungl-
ingadeilda svo og öll önnur verkefni
hvers héraðssambands hafi héraðs-
sambandið fastráðinn framkvæmda-
stjóra, — félagsmálaleiðtoga — sem
starfi eingöngu að uppbyggingu fé-
lagslegs starfs á þessu sviði. Smærri
héraðssamböndin gætu e. t. v. i fyrstu
sameinast fleiri en eitt um fram-
kvæmdastjóra. önnur hafa þegar
mann í sinni þjónustu á þessu sviði.
Fjárhagsgrundvöllur héraðssam-
banda er víða ótryggur og hrís því
mörgu sambandinu hugur við að fast-
ráða mann. Sveitafélögin ættu að
leggja þessu máli verulegt lið, og með
stærri sambandssvæðum og vaxandi
starfi vex einnig fjáröflunarmögu-
leikinn verulega.
Ungmennafélögin í landinu hafa
verið í broddi fylkingar varðandi það
að stuðla að ánægjulegum útisam-
komum víðsvegar á landinu, t. d. um
verzlunarmannaheigina.
Nefndin leggur til, að hvert hér-
aðssamband setji sér það markmið að
koma upp, hvert í sínu héraði, við-
unandi útivistaraðstöðu fyrir ferða-
fólk að sumrinu, þar sem séð væri
fyrir nauðsynlegri tjaldbúðaraðstöðu
með vatnslögnum og annarri hrein-
lætisaðstöðu á viðundandi hátt.
Þessi starfsemi gæti fljótt gefið af
sér tekjur, þar sem slíkri starfsemi
fylgir alltaf einhver viðskiptaþjón-
usta, sem nauðsynlegt væri að koma
upp. Sem dæmi fyrir slíka ferðaþjón-
ustu mætti nefna Þrastarskóg.
Til nýrra verkefna ungmennafélag-
anna skal telja landgræðslu, sem ein-
stök ungmennafélög hafa þegar haf-
izt handa um, og er það í sama anda
og fyrri verkefni og áform ung-
mennafélaganna, að klæða landið.
Um hin önnur verkefni ungmenna-
félaganna er ekki rætt hér, aðeins
leitast við að draga fram þá þætti
sem nýrri eru og skapast meðal ann-
ars af breyttum aðstæðum, nýjum
möguleikum og breyttum þjóðfélags-
háttum.
Verkefni framkvæmdastjóra hér-
aðssambandanna eru nær óteljandi,
þar sem segja má að markmiði ung-
16
SKINFAXI