Skinfaxi - 01.11.1967, Blaðsíða 18
mennafélaganna séu lítil takmörk^
sett innan þess ramma sem heyrir tirl
mannræktar og umbóta í þjóðfélag-
inu.
Verksvið UMFl, það forystuhlut-
verk sem framkvæmdastjórn UMFl
er ætlað er vissulega mjög fjölþætt:
I fyrsta lagi er óhugsandi að allt
það skipulags- og framkvæmdastarf,
sem þar þarf að inna af hendi, verði
leyst í hjáverkum.
Nefndin telur aukið skipulag nauð-
synlegt með tilliti til sameiginlegrar
fyrirgreiðslu allra héraðssambanda
og ungmennafélaga í landinu. Leggja
verður áherzlu á aukið samstarf við
önnur æskulýðssamtök í landinu, sem
vinna á hliðstæðum grundvelli, t. d.
telur nefndin skipulagt samstarf við
ISl mjög mikilvægt og nauðsynlegt,
og minnir á tillögu um samvinnu-
nefnd UMFl og ÍSl í því sambandi.
Skipulagning
1. Skrifstofa UMFI
1. UMFl hafi opna skrifstofu á
venjulegum skrifstofutíma allt
árið.
2. UMFl ráði framkvæmdastjóra,
sem starfi eingöngu að málefn-
um UMFl.
3. UMFl ráði skrifstofustúlku.
2. Verkefni frainkvæmdastióra
UMFl
1. Framkvæmdastjóri annist alla
framkvæmdastjórn og sjái um
að samþykktir stjórnar UMFl
séu framkvæmdar. Hefur á
hendi fjármál UMFl og gætir
réttar þess í hvívetna.
2. Skrifstofa UMFl sé tengiliður
milli stjórnarinnar og héraðs-
sambandanna.
3. Framkvæmdastjóri heimsæki öll
héraðssambönd minnst einu
sinni á ári og einstök félög ef
ástæða þykir og tími vinnst til.
til.
4. Framkvæmdastjóri sér um, á-
samt skrifstofustúlkunni, að
skýrslur innheimtist og berist
skilvíslega frá öllum héraðs-
samböndum, og séu fullkomlega
útfylltar eftir því sem form
þeirra segir til um.
5. Framkvæmdastjóri kannar fyrir
hönd stjórnarinnar grundvöll
fyrir stofnun nýrra ungmenna-
félaga sérstaklega í skólum og
þéttbýli landsins og vinnur að
slíku. Fylgist ennfremur með
möguleikum þeirra félaga sem
fyrir eru, fjölgun félaga eða
samruna.
Sérstök verkefni
1. UMFl hefjist þegar handa um
stofnun og starfrækslu félagsmála-
skóla, sem hafi það markmið að
þjálfa unga menn og konur til þess
að taka að sér félagslega leiðbein-
ingu innan héraðssambandanna og
innan einstakra ungmennafélaga.
UMFl láti fram fara ýtarlega
athugun á því hvort ekki sé unnt,
að ungmennafélagshreyfingin
komi upp sumardvalarheimili fyrir
börn sem víðast á landinu, t. d. í
skólunum. Með því móti væri hægt.
að ná til mikils fjölda barna og
unglinga, sem ynnu þá að ýmsum
verkefnum ungmennafélaganna,
t. d. landgræðslu, kæmust þannig
i beint samband við störf og hug-
18
SKINFAXI