Skinfaxi - 01.08.1973, Side 4
Þjóðhátíðin að ári
Þegar 1100 ára afmælis íslandsbyggðar
verður minnst á næsta ári um land allt,
munu hátíðahöldin hvarvetna í héruð-
unum hvíla að verulegu leyti á ung-
mennafélögum og samtökum þeirra. For-
ráðamenn hinnar stjórnskipuðu þjóðhá-
tiðarnefndar munu líka fljótlega hafa
komist að þvi að í undirbúningi og fram-
kvæmd héraðshátiða treystu allir fyrst og
fremst á ungmennasamtökin, sem byggja
á einstæðri reynslu og dýrmætri erfða-
venju varðandi útihátíðahöld á Islandi.
Skinfaxa þætti mikill fengur að því að
fá fréttir, frásagnir og hugmyndir varð-
andi þjóðhátíðahöldin að ári. Blaðið vill
gjarnan miðla reynslu, upplýsingum og
hugmyndum um þetta mál.
Það hlýtur að vera metnaður ung-
mennafélaga um allt land að eiga sem
stærstan hlut að hátiðahöldunum og
gera þau svo úr garði að þau verði hátíð
og skemmtun fyrir fólk á öllum aldri.
Slikar hátíðir hafa mikla þýðingu fyrir
menningu þjóðarinnar og samheldni, séu
þær vel skipulagðar, og til þess er ung-
mennafélögunum best trúandi.
FORSÍÐUMYNDIN
sýnir unga drengi í hörkukeppni á í-
þróttavellinum i Þrastaskógi í sumar.
Sigurður Geirdal tók myndina, en hann
stjórnaði líka vinnuskóla UMSK og UMFÍ
í sumar. Sjá frásögn í þessu blaði.
íþróttaverðlaun UMSS
Sigurlína Gísla-
dóttir var kjör-
in „íþróttamað-
ur ársins“ 1972
hjá Ungmenna-
sambandi
Skagafjarðar. Á
myndinni sést
Sigurlín með
verðlaunagripin
sem sæmdar-
heitinu fylgir.
Sæmdir starfsmerki
Á héraðsþingi IJMSE í vor voru tveir af for-
ystumönnum UMSE um árabil sæmdir starfs-
merki UMFÍ. Það voru þeir Sveinn Jónsson
(t. h.) og Birgir Marinósson.
4
SKINFAXI