Skinfaxi - 01.08.1973, Side 18
Landshappdrættí UMFÍ 1973
Á 28. þingi UMFÍ í Haukadal var sam-
þykkt að fela stjóm UMFÍ að koma á
happdrætti til tekjuöflunar fyrir hreyf-
inguna. Happdrætti þetta er nú farið af
stað undir nafninu „Landshappdrætti
UMFÍ 1973“, og er skipulagt á þann hátt
að aðildarfélögum og samböndum UMFÍ
hafa verið sendir miðar eftir meðlima-
fjölda, og er fastlega vonast eftir því að
allir selji upp. Verð hvers miða er kr.
200,00 og útgefnir miðar samtals 15.000.
Sölulaun verða 80. kr. pr. miða og 20 kr.
í viðbót til þeirra sem best standa sig.
Landshappdrætti heildarsamtakanna
hefur marga kosti fram yfir minni stað-
bundin happdrætti, t. d. losna félögin við
alla aðra vinnu og skipulagningu en sölu
miðanna, vinningar verða stórum glæsi-
legri og félögin þurfa engu að hætta,
taka allt sitt á þurru, ef svo má segja.
80-100 kr. fyrir að selja einn happdrættis-
miða sýnir okkur líka að hér getur orðið
um drjúga tekjulind að ræða fyrir þá sem
leggja sig fram.
Dregið verður 1. des. og verða menn
því að nota tímann vel, því happdrættið
nær ekki tilgangi sínum nema allir mið-
arnir seljist, og þá er líka tryggt að
sölulaun til félaga og sambanda verða
kr. 1500 þús., og eins og fjármálum okk-
ar er háttað í dag, ætti að muna um þá
upphæð. Vinningar eru 15 talsins og að
verðmæti hálf miljón króna.
UMFÍ væntir mikils af tilraun þessari
og treystir því að menn sýni þann dugn-
að sem með þarf til að slíkt fyrirtæki
heppnist, takist þessi tilraun gæti hér ver-
ið um árvissan tekjustofn fyrir ung-
mennafélögin að ræða. Hér fvlgir svo
skrá yfir vinningana.
1. Vélsleði ................ 200.000,00
2. Útvarp og plötuspilari . . 80.000,00
3. Sjónvarpstæki............. 40.000,00
4. 340 lítra frystikista.. 40.000,00
5. Kæliskápur................ 30.000,00
6. Singer saumavél .......... 30.000,00
7. Hrærivél.................. 16.000,00
8. Viðleguútbúnaður....... 15.000,00
9. Ryksuga .................. 14.000,00
10. Ferðaútvarp ............... 7.000,00
11. Veiðitæki ................. 7.000,00
12. Myndavél .................. 7.000,00
13. Kaffikanna ................ 5.000,00
14. Vöflujárn.................. 4.500,00
15. Brauðrist.................. 4.500,00
Samtals kr. 500.000,00
Sig. Geirdal.
18
SKINFAXI