Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1982, Síða 7

Skinfaxi - 01.06.1982, Síða 7
Ungir fjallgöngugarpar. Göngufólk hjá Umf. Bessastaðahrepps hvílir sig á göngunni. ent. Gengið var á (jallið Heina- berg og um nágrenni þess. Göngustjóri hjá Umf. Val var Páll Ingvarsson í Flatey. Góðar lýsingar á gönguleiðum fýlgja með í'rá mörgum félögum. Fftirtektarverðust er göngulýsing um Þorleifsstaði og nágrenni frá Umf. Baldri í Hvolhreppi, HSK. Göngulýsing þessi er samin af Sigurþóri Sæmundssyni, fyrrum bónda á Þorleifsstöðum, en jörðin fór í eyði eftir Heklugosið 1947. I lýsingunni fléttar Sigurþór saman lýsingu á gönguleiðinni og sögum um þá staði sem farið er um. Hafi Sigurþór kæra þökk fyrir vel unnið verk. Fjölmennasta gangan sem vit- að er um, var hjá Umf Víkverja í Reykjavík, um 300 manns, en þar var gengið um Flliðaárdalinn. Göngustjóri og leiðsögumaður var Ragnar Jónasson, kennari. Kveðja frá Umf. Dreng Oddur Andrésson Neðra-Hálsi, Kjós, var jarðsunginn frá Reynivallakirkju, laugardaginn 3. júlí. Langar okkur ungmennafélagana að minnast hans lítil- lega og þakka að leiðarlokum framlag hans til ræktunar lýðs og lands. Oddur var fæddur árið 1912 að Bæ í Kjós; sonur hjónanna Andrésar Olafssonar bónda og hreppstjóra og Olafar Gestsdótt- ur. Ungur fluttist hann með foreldrum sín- um að Neðra-Hálsi og bjó þar síðan. Oddur gekk ungur í ungmennafélagið Dreng, eins og títt var um unga menn á þeim tíma. Gerðist hann fljótt góður liðs- maður og var meðal annars formaður þess í tvö ár. Var hann og í nefnd þeirri sem sá um undirbúning að byggingu félagsheimilisins Félagsgarður sem Umf. Drengur byggði á árunum 1945-1946. Eftir að Oddur minnkaði afskipti sín í ungmennafélaginu og yngri menn tóku við hélt hann áfram störfum í þágu menningar- mála. Hann var áhugamaður um skógrækt og sat í stjórn Skógræktarfélags Islands um tíma. Hann var formaður Bræðrafélags Kjósarhrepps, sem sá um rekstur bókasafns sveitarinnar. Oddur lærði orgelspil og söngstjórn ungur að árum, og hcfur liann haldið uppi góðu sönglíli í sveitinni og víð- ar, bæði á gleði- og sorgarstundum. Við skrifum þessi stuttu og ónákvæmu ævibrot urn Odd á Neðra-Hálsi með þakk- læti í huga og vottum fjölskvldu hans sam- uo' Ungmennafélagið Drengur. skinfaxi 7

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.