Skinfaxi - 01.06.1982, Page 30
Dagana 18. til 22. júlí s.l. tóku
drengir úr U.M.F. Njarðvíkur
þátt í alþjóðamóti unglinga, sem
haldið var í Dronninglund við
Alaborg í Danmörku. Þátttak-
endur voru á annað þúsund frá 8
þjóðum.
Fyrir tveimur árum tóku þessir
drengir þátt í þessu sama móti og
sigruðu með yfirburðum í sínum
aldursflokki sem þá kallaðist
drengjaflokkur og útnefndu Danir
þá heimsmeistara drengja. Nú
kepptu þeir í flokki sem kallast
Herre Junior (16 ára og yngri) og
sigruðu nú með enn meiri yfir-
burðum en áður. Að launum
hlutu þeir áletraðan kristalsvasa,
og hver þátttakandi auk þess gull-
pening og íþróttatösku.
Keppt var á grasi í 27 — 30
Fremri röd frá vinstri: Hreidar Hreidarsson. Reynir Kristjánsson. Ólafur Ó. Thordersen, fyrirliði, Kristinn
Einarsson, Guðbjöm Jóhannesson, Ómar EUertsson. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Thordersen, þjálfari,
Birgir Sanders, Jón Magnússon, Guðjón Hilmarsson, Þórður Ólafsson, Teitur örlygsson, Guðný Thorder-
sen, fararstjóri.
Umf. Njarðvíkur:
Glæsiför til Danmerkur
stiga hita, nema úrslitaleikurinn,
sem fram fór í veglegri íþróttahöll,
og fóru leikir drengjanna sem hér
segir:
í riðlakeppninni:
Njarðvík : TVS Nieder Esch Bach,
Frankfurt Þýskal. 16 : 3
Njarðvík : Árhus, Danmörk 17 : 6
Njarðvík : Oespel Kley, Þýskalandi 13:11
í undanúrslitum:
Njarðvík : TSV Nord Harrislee,
Þýskal. 15 : 9
Njarðvík : Oespel Kley, Þýskalandi 17 : 6
Þessi leikur gegn Oespel Kley er
mjög athyglisverður, þar sem í
riðlakeppninni sigraði Njarðvík
þetta lið með aðeins 2 mörkum, en
þetta lið komst áfram ásamt
Njarðvíkingum, en orsökina má
að öllum líkindum rekja til dóm-
gæslunnar. I fyrri leiknum var
mjög þýsksinnaður dómari og
dæmdi t. d. 8 vítaköst á Njarðvík-
inga en 1 á Þjóðverja. í síðari
leiknum var danskur dómari,
Jensen að nafni, sem að allra
dómi var lang besti dómari móts-
ins.
75
’ARA
Úrslit:
Njardvík : Burlevs HF, Malme, Svíþ. 19 : 7
Mikill áhugi var fyrir þessum leik,
og fylltist íþróttahöllin af áhorf-
endum áður en leikurinn hófst,
enda bjuggust allir við jöfnum og
hörðum úrslitaleik, enda hafði
sænska liðið unnið flesta sína leiki
með yfirburðum m. a. einn með
23:4. Ein undantekning var þó á
þessum spádómum, en það var
áðurnefndur Jensen dómari,
hann spáði að Njarðvíkingar
mundu sigra með 15 mörkum
gegn 5.
Eðlileg úrslit þessa leiks hefðu
verið 3-5 marka sigur Njarðvík-
inga, miðað við getu liðanna, en
allt var með Njarðvíkingum í
leiknum, og skal það nú rakið hér í
stuttu máli:
30
SKINFAXI