Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 9

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 9
Jón Gíslason næringarfræðingur: Hvað borðar íþróttafólk? - rétt að velja meira grófmeti - minna af fitu og sykurvörum! Gerð hefur verið kðnnun á mataræði íþróttafólks, sem sýnir hvaða matvæli ráða mestu í fæðuvali og hvernig næringarfræðileg samsetning fæðunnar er. Könnun þessi var gerð að frum- kvæði Heilbrigðis- og rannsóknaráðs Iþróttasambands Islands í samvinnu við Manneldisráð Islands. Til þátttöku voru valin fjögur landslið, karla og kvenna í handknattleik og knattspymu, og fjögur félagslið í sömu greinum, þ.e. samtals 88 einstaklingar með jafnri skiptingu milli kynja. Framkvæmd könnunarinnar og úrvinnsla er byggð á gögnurn Manneldisráðs Islands og er gerð í samvinnu við ráðið, og því var unnt að velja samanburðarhóp á grundvelli niðurstaðna úr almennri könnun Mann- eldisráðs á mataræði íslendinga, sem framkvæmd var árið 1990. Samtals eru 92 einstaklingar í samanburðarhópnum, 44 konur og 48 karlar, með svipaða aldursdreifingu (16-34 ára) og nánast sama meðalaldur og íþróttahópurinn. Einnig var þess gætt að íþróttafólk væri ekki valið í samanburðarhópinn. Unnið er að úrvinnslu niðurstaðna þessarar könnunar og skýrslugerð, en nokkrar þeirra liggja þegar fyrir og er hér fjallað um orkuefni fæðunnar, úr hvaða fæðuflokkum þau koma og einnig vítamín og steinefni. Rétt er að geta þess að í 4. tölublaði Skinfaxa 1991 birtist grein um mataræði íþrótta- fólks, sem gefur nánari upplýsingar um mikilvægi þess að vanda fæðuval og er lesendum því einnig bent á að kynna sér efni þeirrar greinar. Orkuefni fæðunnar íþróttafólk sem stundar erfiðar íþróttir þarf að borða mun meira en kyrrsetufólk. Aukinni orkuþörf er best fullnægt með því að borða meira af kolvetnaríku fæði, t.d. kornmat eins og morgunkorn, brauð og pastavörur eins og spaghettí, sem eru vinsælar meðal íþróttafólks, og einnig grænmeti og ávexti. Iþróttafólk sem tók þátt í þessari könnun nær ekki þeim ráðleggingum sem gefnar eru um neyslu kolvetna hjá Hlutfall orkuefna Hlutfall íþróttafólk er nær ráðleggingum en samanburðarhópurinn, en veruleg dreifing er í neyslu hjá báðum hópum (kemur ekki fram á myndinni). Rúmlega 10% íþróttafólks velur fæðu í samræmi við ráðleggingar. þessum hópi, sem ætti ekki að vera undir 55-60% af orku í daglegri neyslu. Það borðar þó kolvetnaríkara fæði en samanburðarhópurinn og nálgast að Mataræði íþróttafólks Hlutföll orkuefna Alkohól 1% Ráðlegging fyriríþróttafólk: Kolvetni 55-60% Fita 25-30% Prótein 10-15% jafnaði 50% hlutfall kolvetna, eins og sjá má í súluriti, og hafa konur hærra hlutfall kolvetna en karlar. Mikil dreif- ing er í neyslu hjá íþróttahópnum og er hún ekki sýnd í súluritinu. Rúmlega tíundi hluti þeirra nær á bilinu 55-60% kolvetnahlutfalli og þar yfir, en um leið er svipaður fjöldi með neyslu undir 40%. Þegar hlutfall kolvetna er lágt ræður fita meiru en ella í efnaskiptum líkamans og þá kemur þreyta fyrr fram. Einstaklingur sem borðar þannig á því ekki sömu möguleika á að ná árangri í erfiðum íþróttum og ef hann vandaði fæðuvalið. I hlutfalli kolvetna er sykur einnig reiknaður þar sem hann telst til kolvetna og nýtist til að byggja upp orkuforða líkamans. Það er því hætt við að mikil neysla sykurs sé í sumum tilvikum ástæða þess að hlutfall kol- vetna í fæðunni nær því að samræmast ráðleggingum. Sykurríkar matvörur eins og sælgæti og gosdrykkir gefa hins vegar mikla orku en lítið af næring- arefnum eins og vítamínum og stein- efnurn og ber því að velja síður en næringarrík matvæli. Vert er að hafa í huga að sykur leynist ekki eingöngu í sælgætisvörum, heldur einnig kökum, kexi og mörgum öðrum unnum mat- vælum. Ef eingöngu er litið á orku- hlutfall sykurs er það að jafnaði 13.4% hjá íþróttafólkinu en 11.1% hjá saman- burðarhópnum. Dreifing neyslunnar er hins vegar mikil innan íþróttahópsins og er hlutfall sykurs að meðaltali 12% hjá körlum en 14.8% hjá konum. Þá er tíundi hluti þeirra sem eru í félagsliðum með sykurhlutfall yfir 30% og það sama kemur í ljós þegar niðurstöður fyrir konur eru skoðaðar. Þegar hlutfall sykurs er orðið svo hátt mun það hafa áhrif á almennt næringargildi fæðunnar. Sambærilegt gildi fyrir tíunda hluta kvenna í samanburðarhópnum eru 21.5%. Sérstakar ráðleggingar um sykur- neyslu íþróttafólks hafa ekki verið gefnar hér á landi, en manneldismark- mið fyrir lslendinga samkvæmt ráð- leggingum Manneldisráðs Islands gera 9

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.