Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 17
Aukin aösókn í vetur
Sunddeildin:
Hluti A-hópsins á œfingu undir leiðsögn Brynjólfs Bjömssonar þjálfara.
Aðsókn að sunddeild Breiða-
bliks hefur aukist verulega í
vetur. Hefur orðið 40-50 prósent
fjölgun iðkenda. Þessa fjölgun er
meðal annars hægt að þakka
svokölluðu skólasundmóti sem
haldið er árlega.
Þar er ekki keppt eftir hefðbundnum
aldursflokkum, heldur árgöngum, þann-
ig að nemendur í hverjum bekk keppa
innbyrðis. Síðan eru veitt verðlaun fyrir
stigahæsta skólann í yngri aldursflokki
og eldri aldursflokki. Þetta hefur vakið
mikinn áhuga og hófu margir nýir
iðkendur æfingar eftir skólamótið sem
haldið var í fyrravor.
Þá hefur sunddeildin verið auglýst í
skólum í haust, sem hefur einnig sitt að
segja. Allt í allt eru það um 80 manns,
sem æfa sund á vegum hennar. I byrj-
endahópnum eru 30-40 börn.
Að sögn Eiríks Jenssonar formanns
sunddeildar karla er sundfólkinu skipt í
styrkleikaflokka, svonefndan A-hóp, B-
hóp og C-hóp. Þeir fyrstnefndu æfa sex
sinnum í viku og B-hópurinn æfir
fjórum sinnum í viku. I C-hópnum eru
tveir flokkar, sem æfa þrisvar í viku.
„Við höfum ágæta aðstöðu,“ sagði
Eiríkur. „Nýja Kópavogslaugin er mjög
ÍIR Sí SKART
Bankastræti 6. Sími 18600
góð til æfinga. Að auki erum við búin
að fá aðstöðu fyrir þrek- og teygju-
æfingar í kjallara hennar. Það er einkum
ætlað fyrir þá eldri, sem lengra eru
komnir í sundinu.“
Það eru ekki síst yngri börnin sem
sýna aukinn áhuga á sundíþróttinni.
Forráðamenn sunddeildarinnar hafa
ákveðið að freista þess að fá enn fleiri í
sundið. Haldið verður skólamót í vor og
eins hyggjast þeir minna aftur á deild-
ina og starf hennar í skólunum í haust.
Fjögur brons í Borgarnesi
Sunddeildin hefur á að skipa nokkr-
um sterkum sundmönnum. Arlega er
gefin út árangursskrá yfir landið, sem
inniheldur tíu bestu afrekin í hverri
grein. Þar átti sunddeild Breiðabliks þrjá
einstaklinga á síðasta ári. Meðal þeirra
sem æfa með deildinni er Birkir Rúnar
Gunnarsson, sem gerði m.a. garðinn
frægan á ólympíumóti fatlaðra. Þá má
nefna Einar Hrafn Jóhannesson, sem var
aldursflokkameistari í 100 metra skrið-
sundi og Rán Sturlaugsdóttur, sem náði
meistaratitli á unglingameistaramótinu
sem haldið var fyrr í vetur.
A næstunni mun sundfólkið taka
þátt í mótum á vegum Armanns og KR.
Einnig keppir það að því að ná lág-
marki á innanhúsmeistaramótið sem
fyrirhugað er að halda síðast í þessum
mánuði. Þá er stefnan einnig sett á lág-
markið fyrir aldursflokkameistaramótið
í júlí. UMSK-liðið féll raunar úr 1.
deild í bikarkeppnini í vetur og tak-
markið er auðvitað að komast aftur upp.
A-hópurinn hyggst halda til útlanda
í sumar og dvelja þar í æfingabúðum.
Enn er ekki ákveðið hvert eða hvenær
verður farið, en sundfólkið hefur aflað
fjár til ferðarinnar sl. tvö ár, einkum
með dósasöfnun.
Það er því ýmislegt framundan hjá
sundfólkinu í Breiðabliki, eins og sjá
má. 8-12 ára flokkurinn hafði raunar
verið á þorramóti Skallagríms í Borgar-
nesi helgina áður en þetta var skrifað.
Þar vann hann fjögur brons.
Opið hús og fleira
En það er fleira en sundið sem fer
fram á vegum deildarinnar. Hún er til
dæmis með opið hús nokkrum sinnum á
ári í félagsheimili Kópavogs. Þar eru
m.a. flutt skemmtiatriði sem sundfólkið
sér sjálft um, afhent mætingaverðlaun
fyrir síðastliðinn mánuð og ýmislegt
fleira gert sér til skemmtunar.
Þá er farið í æfingabúðir úti á landi
einu sinni á ári. Venjulega er dvalið yfir
helgi. Þá er mikið synt, haldnar kvöld-
vökur og málin rædd.
17