Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 11

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 11
ekkert bæði hvað varðar magn og gæði próteina í mataræði íþróttafólks og próteinduft og slíkar vörur eru því með öllu óþarfar. Borið saman við samanburðar- hópinn fær íþróttafólk meira prótein úr mjólkurmat og minna úr kjötvörum, sem er það sama og sjá má fyrir fitu. Þessar og aðrar niðurstöður benda til þess að íþróttafólk geti dregið úr neyslu mjólkurafurða og lagt í staðinn áherslu á kolvetnaríkari fæðu. Þessu til stað- festingar má nefna að bæði konur og karlar í íþróttahópnum hafa að jafnaði kalkneyslu vel umfram ráðlagðan dagskammt og hópurinn neytir kalks í magni sem er langt umfram það sem samanburðarhópurinn gerir. Mest af þessu kalki kemur úr mjólkurmat, en í þessu tilliti sem og öðru ber þó að geta þess að dreifing neyslunnar er slík að framangreind ráðlegging á ekki við um alla íþróttamenn. Vítamín og steinefni Það eru ófáir íþróttamenn sem gæta þess vel að taka sinn daglega skammt af bætiefnum í töiluformi eða annan hátt, en huga ekki vel að hlutfalli milli kolvetna og fitu í fæðunni, sem getur þó haft meiri áhrif á árangur. Niðurstöður könnunarinnar sýna hins vegar að íþróttafólk neytir að jafnaði nægilegs magns af vítamínum og steinefnum og er rétt að geta þess að vítamíntöflur og slíkar vörur reiknast ekki með í nið- urstöðum, en lýsisneysla er þó tekin með. Dreifing neyslunnar er hins vegar þannig að nokkur hluti hópsins neytir bætiefna undir ráðlögðum dagskammti og er þetta sérstaklega áberandi fyrir konur og á einnig helst við um tiltekin bætiefni. Munur á orkuneyslu karla og kvenna gerir það að verkurn að karlar borða meiri mat og eru því að jafnaði yfir ráðlögðum dagskammti fyrir öll vítamín og steinefni. Orka í fæðu karla í íþróttahópnum er að jafnaði nálægt 3700 hitaeiningum, en um 3100 hjá körlum í samanburðarhópnum, og vegna þessa fá íþróttamenn meira magn bætiefna úr fæðu og fyrir sum efni verulega umfram ráðlagðan dag- skammt. Þetta á t.d. við um A-vítamín, sum B-vítamín og steinefni eins og kalk og fosfór. Konur eru undir ráðlögðum dagskammti fyrir D- og E-vítamín, vítamín B6 og tiltekin steinefni eins og járn, sem er mikilvægt næringarefni í fæðu íþróttafólks. Munur á íþrótta- konum og konum í samanburðarhóp er ekki sá sami og hjá körlum, og er það ekki síst vegna þess að munur á orkuneyslu hjá þessum tveimur hópum kvenna er óverulegur, eða aðeins um 50 hitaeiningar að jafnaði. Þegar horft er framhjá mun á orkuneyslu milli karla og kvenna kemur í ljós að konur velja næringarríkari mat en karlar með tilliti til bætiefna, og þegar allur íþróttahópurinn er á sörnu forsendum borinn saman við saman- burðarhópinn kemur í ljós að fæði íþróttafólks er síst bætiefnaríkara en hinna. Lokaorðin geta því beinst að því að það eru ekki gæðin sem einkenna mataræði íþróttafólks, heldur magnið, og á þetta að minnsta kosti við um þann hóp karla sem þátt tók í þessari könnun. SUNDLAUG.Z/.Z/.^ KÓPAVOGS '<*<*< VIÐ BORGARHOLTSBRAUT S:642560 Rennibrautin er opin alla daga. Opið mán. - föst. frá kl. 7:00 - 20:30 Laugardaga og sunnudaga frá kl. 18:00 - 16:30. GUFUBAÐ KARLAR KONUR mán 15:00-20:30 mán þri 15:00-20:30 þri mið 15:00-20:30 mið fim 15:00-20:30 fim fös 15:00-20:30 fös lau 08:00-16:30 lau sun 08:00-13:00 13:00-16:30 sun Ný opnuð nuddstofa sem býður upp á líkamsnudd, punktanudd með las- er, fjölþætt rafmagnsnudd og svæðameðferð. Sérhæft íþróttanudd. 11

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.