Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 24
Iþróttamiðstöðin á Laugarvatni býður upp á margvíslega möguleika fyrír hópa sem vilja dvelja ífögru umhverft í nokkra daga. íþróttamiðstöðin á Laugarvatni: DVÖL SEM SKILAR ÁRANGRI „Aðsóknin að íþróttamiðstöðinni er alltaf að aukast. Það hefur til dæmis aldrei gengið eins vel með bókanir og í vetur,“ sagði Hermundur Sigurmundsson forstöðumaður íþróttamiðstöðv- arinnar á Laugarvatni í stuttu spjalli við Skinfaxa. íþróttamiðstöðin er, sem kunnugt er, rekin af Ungmennafélagi Islands í samvinnu við ISI og menntamálaráðu- neytið. A veturna hefur hún yfir að ráða 15 fjögurra manna herbergjum og góðum æfingasal, ,,Speglasalnum,“ svokallaða. Þar er hægt að hafa 30-40 manns í svefnpokaplássum. Á sumrin fær Iþróttamiðstöðin til afnota hluta af heimavistarhúsnæði menntaskólans. Samtals hefur hún þá yfir að ráða plássi fyrir um 100 manns. „Síðan leigjum við aðstöðu af íþróttakennaraskólanum, bæði íþrótta- húsið og sundlaugina, fyrir hópana sem koma til okkar,“ sagði Hermundur. „Við erum einnig með aðstöðu til að iðka fótbolta, golf, tennis, hestaíþróttir, badminton, siglingar og seglbretti, svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa víða verið lagðir göngustígar, sem auka mjög möguleika til náttúruskoðunar.“ Þeir sem einkum notfæra sér þá aðstöðu, sem íþróttamiðstöðin hefur upp á að bjóða, eru hópar skólafólks, íþróttahópar, ýmis fyrirtæki, sem finnst staðurinn tilvalinn fyrir námskeiðahald og yfirleitt allir þeir sem vilja komast á stað, sem býður upp á aðlaðandi umhverfi, afnot af ýmsum íþróttamann- virkjum og er kjörinn til útivistar. I sumar hefur áhugahópur um íþróttir aldraðra bókað sig, einnig íþróttasam- band fatlaðra, Knattspyrnuskóli KSÍ, Kennaraháskóli íslands með endur- menntunarnámskeið, auk fjölda íþrótta- hópa hvaðanæva að af landinu. Þetta sýnir breiddina í þeim hópum, sem kjósa að dvelja í Iþróttamiðstöðinni hluta sumarsins. „Við bjóðum upp á æfingabúðir allt árið og eru félögin þegar farin að nýta sér aðstöðuna um helgar yfir vetrar- tímann. Menn eru líka smám saman að uppgötva, að þeir þurfa ekki að fara til útlanda til þess að komast í æfinga- búðir. Á páskunum í fyrra kom fót- boltaliðið frá Akranesi og var hjá okkur í fimm daga, í stað þess að fara út. Þeir urðu svo íslandsmeistarar. Svo kom meistaraflokkur karla í Fylki og þeir unnu 2. deildina. Þá kom meistara- flokkur kvenna í handbolta hjá Breiða- bliki og þær urðu íslandsmeistarar. Við töldum þetta góða gengi merki þess, að liðin hefðu erindi sem erfiði þegar þau kæmu hingað austur. Svona dvöl hefur líka mikið að segja fyrir félagslega þáttinn. Leið- beinendur og liðsmenn eru saman allan daginn og á kvöldin, fara í sund eða gufu saman, á kvöldvökur eða horfa á sjónvarpið, drekka kvöldkaffið saman og njóta þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða.“ 24

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.