Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 38
Átu pylsur fram á haust
Þá þurfti að skipuleggja starf mikils
fjölda manna, starfsliðs við keppni,
veitingasölu, gæslu, tjaldstæðavörslu
o.m.fl. Eitthvað þufti allur mann-
skapurinn að éta. Hafsteinn og Eggert
Haukdal, þáverandi gjaldkeri HSK,
núverandi alþingismaður, fóru á milli
fyrirtækja og sömdu um ýmsa aðdrætti.
Sumsstaðar glottu menn í kampinn yfir
bjartsýni þessara dreifbýlisgutta. Glott-
ið hvarf þó þegar salan kom í ljós. Þeir
sömdu aðeins við Egil Skallagrímsson
og Kóka kóla. Menn þaðan óku stórum
flutningabílum austur og höfðu svo
aðra minni til að flytja vörurnar í
sölutjöld og skúra. Þegar upp var staðið
höfðu birgðirnar selst upp, 48 tonn af
gosdrykkjum, um 144.000 flöskur.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hafði
aldrei selt svo mikið magn í einu og þar
á bæ var þessi sala lengi í minnum
höfð. í hitanum nærðist fólk varla á
öðru en ís og gosdrykkjum.
Það var verra með pylsurnar. Það
var lítið étið af þeim vegna hitans sem
Ungir sem aldnir höfðu nóg fyrir stafni á
mótinu. Myndir úr Sögu landsmóta UMFl
1909-1990
brast á þessa júlídaga og ekki var hægt
að skila þeim. Þeim var stungið í frost
til bráðabirgða en Skarphéðinsmenn
máttu láta sig hafa það að éta pylsur í
flest mál út sumarið og fram á haustið.
Reyndar höfðu nemendur Laugaskóla
orðið að éta svokallaða ,,landsmóts-
tertu“ allan veturinn 1961-62...
Svanirnir iifnuðu við
. . . Eins og alltaf var mótinu slitið
með verðlaunaafhendingu og dansleik á
sunnudagskvöldið. Þá var Hafsteinn
Þorvaldsson búinn að vera á þönum
allan mótstímann. Hann var orðinn svo
þreyttur og bólginn á fótunum, að hann
leyfði sér að skreppa upp í burst
héraðsskólans, leggja sig þar og fylgjast
með mótsslitunum út um gluggann. Þá
sá hann þrjá svani koma fljúgandi
vestan yfir heiði, yfir héraðsskólann og
mótssvæðið og þaðan í austurátt, í átt til
Eiða. Svanir voru í merki mótsins og
var því vel við hæfi að þeir leggðu
blessun sína á þennan hátt yfir vel
heppnað mót og settu stefnuna á hið
næsta.“
„íþróttagallar ársins"
Eigum mikið úrval af vönduðum íþrótta- og æfingagöllum í barna- og fullorðinsstærðum
á sérlega hagstæðu verði. Sarnxet-
mgiffL ----- =;------------ „
SPORTVAL • KRINGLAN
SÍMI 689520
HAMRABORG 14 -
SÍMI 40097
200 KÓPAVOGUR
• FAX 40067
BOLTAMAÐ URINN
LAUGAVEGI 23 • SÍMI 15599
38