Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 39
Þeir sem nota Macintosh-tölvur skila meiri árangri, betri vinnu og á skemmri tíma. Þúsundir
Macintosh-forrita eru til, ekki aðeins ritvinnsluforrit, töflureiknar og gagnagrunnar, heldur
ýmiss konar forrit fyrir bókhald, menntun og kennslu, útgáfu, umbrot og kynningar, net-
tengingar og samskipti, hönnun og almiðlun, skipulag, umsjón, áætlanagerð
og fjölmargt fleira. Hver einasta Macintosh-tölva er með innbyggða nettengingu, sem auð-
veldar t.d. samnýtingu prentara. Forrit ganga á milli mismunandi gerða Macintosh-
tölva þannig að ekki er nauðsynlegt að skipta um hugbúnað pótt tölvan sé stækkuð.
------ Kerfishugbúnaður Macintosh-tölvanna er að sjálfsögðu allur á íslensku, svo og
algengustu forritin, þannig að ekki þarf lengur að læra torskilið tölvumál til að geta nýtt
Macintosh-tölvuna til fullnustu. Apple StyleWriter er bleksprautuprentari með mikla upplausn,
360 x 360 punkta á fertommu, sem er þéttara en algengustu leysiprentarar geta og með
TrueType-leturgerðum verða gæðin frábær.
&
Apple-umboðið
skipholti 21, sími (91) 624 800 Komdu og kyiintu þér Macintosh ■ tölvu sem er á sama máli og þú