Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 35
Nokkuð
fólk noti
stera!
um að ungt
Hrafn Friöbjörnsson er flestu áhugafólki um líkamsrækt kunnugur.
Hann er leiðbeinandi í Mecca Spa og er líklega okkar fremsti
líkamsræktarþjálfari enda búinn að kenna samfleytt í 14 ár. Hann
kann sitt fag og er geysilega vinsæll og ekki síst hjá stúlkunum
enda kappinn nokkuð flottur. Stúlkurnar hérna heima þurfa þó
jafnvel að sjá á eftir Hrafni um tíma en hann fer út til
Bandaríkjanna í haust til að ieggja lokahönd á BA-ritgerð í
sálarfræði og leið hans liggur til setu í Bandaríkjunum á næsta ári
þar sem hann ætlar í mastersnám í sálarfræði. Skinfaxi fékk
þennan gullmola til að ræða um mikilvægi hollrar líkamsræktar
sem getur þó stundum snúist upp í andhverfu sína.
- Hrafn byrjaöi ungur á árum í dansi
og var í listnámi í Bandaríkjunum í eitt
ár en fór snemma aö stunda
líkamsrækt. En skyldi hann aldrei hafa
stundað aörar íþróttir?
„Ég hafði mikinn áhuga á frjálsum
þegar ég var lítill en ég æfði þær ekki að
neinu viti. Boltaíþróttirnar hafa einhvern
veginn aldrei vakið áhuga minn þótt ég
komi af mikilli boltafjölskyldu. Ég hef því
alltaf verið svarti sauðurinn í fjölskyldunni
hvað þetta varðar. Ég sé þó dálítið eftir því
í dag að hafa ekki prufað að sparka."
- Gastu eitthvaö í frjálsum?
„Ég hafði ágæta hæfileika i sprett-
hlaupum og í langstökki þótt ég segi
sjálfur frá."
- Leiöin lá þó í líkamsræktina en
hvernig skyldi hann fara aö því aö vera
svona „fit” og flottur?
„Það er mikil vinna sem liggur þar að
baki get ég sagt þér," segir hann
hálfhlæjandi að spurningunni. „Ég hef
náttúrulega hreyft mig í mörg ár og í
dansinum sérstaklega verður líkaminn
hálfgert eins og hljóðfæri sem þú lærir að
fara vel með. Þá hef ég einnig passað
rosalega vel upp á mataræðið. En ég þarf
að æfa vel og passa hvað ég set ofan í mig
því ef ég geri það ekki á ég nokkuð auðvelt
rneð að bæta framan á mig. En mikil
hreyfing í gegnum árin hefur haft mikið að
segja og mér finnst orðið
auðveldara að halda mér í formi í
dag en áður. Það er kannski fyrst
og fremst vegna þess að ég hef
vanið mig á ákveðna hluti og
langar t.d. ekki mikið í feitmeti án
þess þó að þetta fari út í öfgar. Ég
hef mikla hreyfiþörf og fer mjög
reglulega út að skokka og einnig á
línuskauta þegar færi gefst."
- Getur maöur oröiö jafn
flottur og þú ef maður mætir í
tíma til þín?
„Já, það er engin spurning að
það geta allir komið sér í gott
líkamlegt form. En þetta kostar
mikla vinnu og fólk verður að
vera tilbúið til að leggja mikið á
sig ef það ætlar að ná góðum
árangri."
- En eru þetta ekki nánast
eingöngu stelpur sem mæta í
tíma hjá þér, bara til aö fá aö líta
á goöið?
„Ég segi það nú ekki. Ég held
nú frekar að þær séu að mæta til
koma sér í gott form. En það eru
reyndar fleiri konur en karlar sem
stunda þolfimi þótt það hafi verið
að breytast á undanförnum
árum."
- Þú ert þekktur fyrir aö vera
kraftmikill kennari enda kemur fólk
hálfskríöandi út úr tíma hjá þér og er
heppiö aö drukkna ekki í eigin svita.
Hefur þú dálítið gaman af því aö láta fólk
taka vel á?
„Já, ég hef það. En það er í raun svo
skrýtið að á hverju ári held ég að nú sé
kominn tími til að hætta. En ég get bara
ekki hætt enda hef ég svo gaman af að
vinna méð fólki og vinna í þessum
líkamsræktargeira. Ég sé því alveg fyrir
mér að ég verði að kenna sambýlingum
mínum þegar ég verð kominn á
elliheimili."
- Viö töluöum um það áöan aö þaö
kostaöi mikla vinnu og nokkurn tíma aö
koma sér í gott form. En hvaö meö þá
sem hafa litla þolinmæöi og vilja ná
skjótum árangri. Nota þeir bara ekki
ólögleg efni eins og stera?
„Ég hef nú aldrei verið tengdur þeim
hluta líkamsræktargeirans enda ekkert
vöðvatröll sjálfur. Mitt mottó er fyrst og
fremst: Heilbrigð sál í hraustum líkama. Ég
veit að menn eru eitthvað að taka inn
ólögleg efni til að flýta fyrir og bæta
vöðvamassa og sjálfsagt er meira af þessu
en maður veit um. En ég er alfarið á móti
öllum þessum efnum og hef aldrei komið
nálægt þeim enda hef ég engan áhuga á
því."