Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 13
- Hvernig er þaö eiginlega, gengur
þaö upp að starfa sem þula og
flugfreyja og vera í tannlæknanámi?
„Já, ef maður skipuleggur sig vel en
þetta er samt búið að vera hálfgert
brjálæði og lítill tími hefur gefist til að
slaka á. Svo er flugfreyjustarfið bara
sumarstarf."
- Er þulan framtíðarstarfið hjá
þér?
„Nei, ekki get ég sagt það.
Tannlæknirinn gengur að sjálfsögðu
fyrir en það er spurning hvort ég mæti
beint úr vinnunni, í tannlæknagallanum
á RUV til að kynna dagskrána. Það er
aldrei að vita."
- Hvernig stóð á því aö þú tókst að
þér þuluhlutverkiö?
„Mig vantaði einfaldlega vinnu með
skólanum sem þurfti að vera
kvöldvinna. Ég sótti því um stöðu sem
þula og var svo heppin að vera ráðin
eftir að hafa farið í prufu."
Af hverja þarf að vera þula
hjá RÚV en ekki hjá Stöð 2 og Skjá 1 ?
„Þetta er gömul hefð, sem hefur
fylgt RÚV frá upphafi og menn vilja
ekki breyta. Það er líka persónulegra að
sjá andlit sem kynnir dagskrána heldur
en að heyra bara rödd. Þá tengist
viðvera okkar einnig Almannavörnum
ríkisins en við getum komið
skilaboðum áleiðis til þjóðarinnar
nánast samstundis ef einhverjir
alvarlegir atburðir eiga sér stað."
Þetta fólk á
virkilega bágt
Brynja Björk Haröardóttir, þula hjá
RÚV, flugfreyja og tannlæknanemi
hefur ákveðnar skoðanir á
forvarnarmálum og skemmtanalífi
okkar íslendinga. Blaðamaður
Skinfaxa settist niður með Brynju
og ræddi um vímuefni, forvarnir og
framtíðana hjá henni.