Skinfaxi - 01.12.2000, Side 8
Ragnheiður Högnadóttir, formaður USVS
ög mótfallin sameiningu
Ég er nijög mótfallin sameiningu UMFI og ISÍ.
Það sem að ég óttast mest ef til slíkrar
sameiningar kemur er hvað verður um okkur í
litlu félögunum út um allt land.
Eins og flestir vita er starfsemi ÍSÍ eingöngu á
íþróttasviðinu, en hin fjölmörgu ungmennafélög
um land allt koma að svo miklu fjölbreyttara
starfi. Má þar t.d. nefna leiklist, skógrækt og
eflaust margtfleira.
Eg sé ekki alveg fyrir mér að ÍSÍ láti mikla
peninga eða sinni á annan hátt starfi hjá félagi
sem að eingöngu er að vinna að félagsmálum og
innanhéraösmálum en skilar ekki afreksfólki í
íþróttum á landsvísu.
Ragnheiður Högnadóttir,
formaður Ungmennasambands
Vestur Skaftfellinga, er ekki á því
að sameina eigi UMFÍ og ÍSÍ.
Sigurður Viggósson er
formaður Héraðssambandsins
Hrafnaflóka sem í sumar héldu
unglingalandsmót UMFÍ. Hvað
finnst honum um þá umræðu að
sameina UMFÍ og ÍSÍ?
„Spurninguna um hvort eigi að sameina þessi
félagasamtök er ekkert einfalt að svara. A þessu stigi tel
ég að það eigi ekki að sameina þessi samtök, þar sem
hvorki eru félagsleg né fjárhagsleg rök sem mæla með
því. Þau starfa ekki á sama grundvelli, nema að hluta
til. Annars vegar eru um að ræða frjáls félagasamtök
eins og UMFI, þar sem ungmenna- og íþróttafélagin
taka fullan þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku
samtakanna og flest þeirra starfa út um allt land og hins
vegar félagasamtök eins og ISI sem starfa samkvæmt
opinberum lögum og sinna lögbundnum verkefnum,
auk almennra íþrótta- og æskulýðsstarfa. Þá sinna þau
verkefnum á sviði sérgreinasambanda og alþjóðlegra
íþróttasamskipta. Mér er þó Ijóst að nokkur verkefni
þeirra skarast og tel ég að um þau eigi að gera
samkomulag milli þessara aðila um skiftingu. I
fjölbreytti þjóðfélagi eins og okkar er nauðsynlegt að
mínu áliti, að setja ekki ein miðstýrð samtök yfir allt
íþrótta- og æskulýðsfólk, slíkt getur leitt til minna
frumkvæðis einstaklingsins sem kallar á minni
starfsemi og minni árangurs."