Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.2000, Qupperneq 12

Skinfaxi - 01.12.2000, Qupperneq 12
Björn B. Jónsson, varaformaður UMFÍ, er giftur Jóhönnu Róbertsdóttur og saman eiga þau tvo syni. Hann er fæddur og uppalinn í Biskupstungum og bjó þar í 40 ár en flutti þá á Selfoss og er í dag framkvæmdastjóri fyrir Suðurlandsskóga. Hann hefur starfað innan UMFÍ frá unglingsaldri og nú kemur hann til greina sem næsti formaður hreyfingarinnar. Jóhann Ingi settist niður með Birni og ræddi við hann um framtíð hans hjá ungmennafélaginu, sameiningarmál UMFÍ og ÍSÍ og margt fleira. - En hver voru fyrstu kynni Björns af hreyfingunni? „Fyrstu kynnin af hreyfingunni voru þegar ég beið eftir að komast inn í Ungmenna- félag Biskupstungna. Ég þurfti að bíða í mörg ár vegna þess að það var í lögum félagsins að þú gast ekki gengið í félagið fyrr en þú varst orðinn fjórtán ára gamall. Við fengum að sjálfsögðu að taka þátt í íþróttum á vegum félagsins en við fengum til dæmis ekki að mæta á aðalfundi fyrr en 14 ára gömul. Ég held að ég fari með rétt með það, að á þessum tíma gengu nær allir í félagið um leið og þeir gátu. Síðan hefur þessu verið breytt og smám saman féll aldurstakmarkið úr gildi." - Þú ert semsagt aö segja aö þú hafir haft svona mikinn áhuga á því þegar þú varst ekki orðinn fjórtán ára aö sækja aðalfundi ungmenna- félagsins? „Já, ég hafði mjög mikinn áhuga á því. Aðalfundi ungmennafélagsins var alltaf beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Þar fóru oft fram harðar kosningar og það var mikil áhrifastaða í Biskupstungum að vera formaður ungmennafélagsins og er reyndar enn þar sem formaður félagsins hefur mikil áhrif á framgang ýmsa mála í sveitarfélaginu." - Hvernig kviknaði áhugi þinn á svona félagsstarfi. Voru foreldrar þínir starfandi í hreyfingunni? „Nei það var nú ekki ástæðan. Ég átti heima á næsta bæ við Geysi og þar var íþróttaskóli. Þórir Sigurðsson, sem var okkar íþróttakennari, dreif alla unglinga með og þar á meðal mig. Það var hins vegar ekki áhugi á íþróttum heima hjá mér og reyndar fannst foreldrum mínum það frekar tímasóun að vera í íþróttum." - Svo verður þú loksins fjórtán ára og gengur í ungmennafélagið og í dag ertu varaformaöur hreyfing- arinnar. Hvað gerðist þarna í millitíðinni? „Það leið nú einhver tíma þar til ég fór að starfa í nefndum á vegum ungmenna- félagsins. Ég hafði hins vegar mikinn áhuga á félagsmálum og endaði svo með því að ég varð formaður félagsins. I framhaldi af því fór ég að starfa innan HSK og var nokkuð fljótt kominn þar í stjórn og svo seinna var ég kjörinn formaður." - Svo kemur smá hlé? „Já, ég fór í nám erlendis og ætlaði að kúpla mig út úr félagsmálum en það tókst nú ekki betur en svo að á meðan ég var í náminu í Finnlandi vann ég að úttekt á skógrækt ungmennafélaganna. Þegar ég kom til baka úr námi fór ég síðan beint inní stjórn UMFI og hef verið þar síðan." - Hvað ertu þá búinn að vera lengi í stjórn? „Ég var kosinn í stjórn UMFI árið 1995." - Á þessum tíma sem þú hefur setið í stjórn hvaða verkefni og málefni finnst þér hafa staðið upp úr? „Það er mjög margt eftirminnilegt og það eru ýmis mál sem við höfum verið að vinna að hafa vakið mikla athygli. Ef við lítum til dæmis bara á sumarið 2000 þá var Unglingalandsmótið mjög glæsilegt og skemmtilegt að það skuli vera hægt að halda mót eins og þetta, án áfengis, um verslunarmannahelgina. Síðan er það stærsta verkefni sem ég hef tekið þátt í, Kultur & Ungdom, sem er reyndar einnig stærsta verkefnið sem Norræni menningarsjóðurinn hefur tekið þátt í. Þetta mót tókst mjög vel þrátt fyrir að hugmyndin hafi verið dálítið "geggjuð" eins og það heitir á unglingamáli. Allur undirbúningur að mótinu var glæsilegur og ég held að þetta hljóti að vera stolt okkar ungmennafélaga að hafa staðið að svona glæsilegu móti. Ég held líka að það séu fáir sem átta sig á því hversu víðamikið mótið var. Þar má til dæmis nefna útplöntunina þar sem margir halda því

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.