Skinfaxi - 01.12.2000, Síða 14
Eg hef ákveðið að hætta í stjórn UMFI, það er ef ég gef ekki kost á mér í kjörinu um formannssætið...það er alveg klárt
fram að heimsmet hafi verið slegið þegar
tæplega 2000 manns plöntuðu
trjáplöntum á þremur klukkutímum."
FORMANNSSÆTIÐ
Þá snúum viö okkur aö máli
málanna. Þórir Jónsson, formaö-
ur UMFÍ, hefur lýst því yfir aö hann
ætli ekki aö gefa kost á sér í
formannssætið næsta haust.
Munt þú bjóöa þig fram?
„Eg held að ég verði bara að svara því eins
og stjórnmálamennirnir gera. Eg neita
því ekki að það eru mjög margir sem hafa
komið að máli við mig. Það verður hins
vegar ekki kosið næst fyrr en eftir tæplega
eitt ár og það eru mjög margir hæfir
einstaklingar innan hreyfingarinnar sem
er vel treystandi í þetta embætti. Ég
hlýt því að vera stoltur yfir því að
sumir vilja sjá mig í þessari stöðu. Ég
held hins vegar að við verðum aðeins
að láta tímann líða áður en ég verð
með einhverjar yfirlýsingar um það
hvort ég gefi kost á mér eða ekki."
- En er þetta eitthvað sem
kæmi til greina og þá er ég aö
tala um vegna vinnu og annars
þess háttar?
„Ég hef sagt það og fer ekkert leynt
með það að formaður UMFÍ þarf að
vera búsettur í Reykjavík. Það er nú
reyndar þannig að við erum
landsbyggðahreyfing fyrst og fremst.
En í Reykjavík slær hjartað í peninga-
málum þjóðarinnar og það skiptir
miklu máli að formaðurinn sé
staðsettur þar sem fjármagnið er. í Reykjavík eru
líka höfuðstöðvar UMFI og ég tel að
formaðurinn þurfi að vera í daglegu sambandi
við starfsfólk UMFI og að þessu leyti er ég
ómögulegur formaður."
- Þú ert semsagt aö segja okkur aö þú
sért aö hugsa um aö flytja til
Reykjavíkur?
„Nei, ég er alls ekki að segja það. Það er hins
vegar veikur punktur að ég skuli búa úti á landi
og það gæti vel verið að ef ég byggi í Reykajvík
að ég væri búinn að lýsa því yfir að ég gæfi kost
á mér í formannssætið."
- Segjum sem svo aö þú segðir nei viö
formannssætinu kæmi þá til greina að
þú sætir áfram í stjórn?
„Nei. Ég hef ákveðið að hætta í stjórn UMFÍ, það
er ef ég gef ekki kost á mér í formannssætið. Það
er alveg klárt."
STAÐA UMFÍ
Nú tekur þjóöfélagið stööugum breyt-
ingum hvernig finnst þér ungmenna-
félagshreyfingunni takast aö halda í viö
nútíma þjóðfélag?
„Að mestu leyti hefur hreyfingin elst vel, en mér
finnst reyndar að við sem stjórnunr í dag, höfum
sveigt of mikið af umhverfis- og menningar-
brautinni en við höfum sinnt þessum málaflokk-
um oft betur. Við erum engu að síður að vinna
mikið að þessurn málum en við verðum að gera
okkur sýnilegri í þessu sem öðru. Ég óttast
ekkert framtíðina og er alveg viss um að
hreyfingin á eftir að lifa og dafna um ókomna
tíð. Stefna okkar er að byggja upp ungt fólk á
Islandi til að takast á við lífið og tilveruna og það
gerum við ekki bara í gegnum íþróttir heldur öll
þau áhugamál sem unglingurinn kann að hafa
og við getum sinnt í ungmennafélagsstarfinu.
- Leiklist, skógrækt, umhverfisvernd og
íþróttir, er ekki flókið aö hafa þetta allt
í sömu hreyfingunni?
„Auðvitað er það flókið. Það er ekkert einfalt
mál að vera formaður í ungmennafélagi en það
er bara þannig að við Islendingar erum bara um
það bil 270 þúsund í heildina og við geturn
ekkert verið að leika eitthvað milljóna þjóðfélag.
Þess vegna held ég að það sé styrkur fyrir
landsbyggðina að eitt og sama félagið getur
haldið utan um æskulýðinn, það er að allt ungt
fólk í einu sveitarfélagi geti fundið eitthvað fyrir
sig hjá ungmennafélaginu. Þar er galdur
formannsins að fylgjast vel með því sem er að
gerast og því unglingarnir hafa áhuga á hverju
sinni."
- Nú eru margir þeirra skoöunar aö
UMFÍ séu samtök landsbyggðarinnar á