Skinfaxi - 01.12.2000, Page 15
meðan ÍSÍ sé meira “borgarbarn”. Hvað gerir
þessi samtök svona ólík?
„ISI var á sínum tíma stofnað af Ungmennafélagi Islands
til að sinna afreksíþróttum og það er stefna UMFI og
áhugi að standa við bakið á ISI með sína afreks-
mannastefnu. Það er hins vegar ekki á stefnuskránni hjá
UMFI að vera í afreksíþróttum. Við erum í íþróttum fyrir
almenning og ég held að það hafi einfaldlega átt betur
Mitt mat er að þessi
umræða sé að komast
á lokastig og það er
mín tilfinning að það
verði ekki sameinað
við þá stefnu sem hin fjölmörgu sveitar- og bæjarfélög úti
á landi hafa sett sér í þessum málefnum.
- í framhaldi af því spyr ég þig, er tímabært að
sameina þessi tvö sambönd? Það er ÍSÍ og
UMFÍ.
„Það er ekkert útilokað í þessu sambandi. En eins og ég
sagði áðan þá eru UMFÍ landsbyggðarsamtök fyrst og
fremst og ég held að það myndi kippa félagsstarfinu
undan mörgum litlum sveitarfélögum ef þessi samtök
yrðu sameinuð. Það er nú bara þannig að það er til fólk
hér á landi sem sér eftir hverri krónu sem fer út á land en
ég held að UMFÍ nýti sitt fjármagn mjög vel út á
landsbyggðinni og ég óttast að þær krónur sem menn
eru að tala urn að myndu sparast með sameiningu
myndu sogast til Reykjavíkur. Þar yrði fjármagnið notað
að mestu í afreksíþróttir, sem er kannski gott útaf fyrir
sig en ekki það sem við hjá UMFÍ viljurn sjá."
- Þannig að þú ert á móti sameiningu?
„Já, ég hef gefið mér góðan tíma til að skoða þessi mál og
Ég óttast að þær krónur sem menn eru að tala um að myndu sparast með sameiningu myndu sogast til Reykjavíkur
hafði þá skoðun að gott væri að setjast niður og ræða
málin með ÍSÍ. Nú er hins vegar komin út skýrsla frá ÍSÍ
sem greinilega er unnin af manni sem ekki þekkir til
UMFÍ. Það er hægt að nefna dæmi í því sambandi þar
sem hann er að taka út eigur UMFI og gleymir þar að
taka til stærstu eigur UMFÍ sem eru í Þrastarskógi. Mér
finnst reyndar með ólíkindum að nefndin sem gaf þetta
út léti þetta fara frá sér svona. Það er ýmislegt annað í
skýrslunni sem bendir greinilega til þess að sá sem hana
vann þekkir ekki til UMFÍ og það finnst mér kannski
rnest miður."
- Nú virðist svona yfir höfuð vera fleiri hjá ÍSÍ
sem vilja sameina heldur en hjá UMFÍ en þessi
samtök vinna saman á ýmsum sviöum eins og
til dæmis hjá Getraunum og Getspá. Finnur þú
fyrir því að þessar sameiningarviðræður hafi
slæm áhrif á samstarfiö?
„Nei ég get nú ekki sagt það. Því
miður hefur samstarf UMFÍ og ÍSÍ
legið að mestu niðri undanfarin ár
og þess vegna kannski erfitt að
svara því. Ég held hins vegar að
umræðan sem slík hafi bara haft
góð áhrif á ungmennafélaga og gert
almenningi betri grein fyrir því fyrir
hvað UMFÍ stendur Mitt mat er að
þessi umræða sé að komast á
lokastig og það er mín tilfinning að
það verði ekki um sameiningu að
ræða."
- Er þetta mikið tilfinninga-
mál til dæmis vegna þess
hversu gömul hreyfingin er?
„Nei, ég hef aldrei haft þá skoðun
að halda eigi UMFÍ gangandi bara
vegna aldursins - alls ekki. Ég held
hins vegar að það sé nauðsynlegl að
hafa sterka landsbyggðahreyfingu
og þá sérstaklega í dag þegar
landsbyggðin stendur höllum fæti.
Ég vona því að UMFI eigi eftir að
styrkjast ennþá meira og ég hef
fundið það að við erum á siglingu
og það er mat mitt að við verðum
ennþá sterkari á komandi árum. Ég
hef aldrei spáð í það að UMFÍ megi
ekki leggjast niður af því að þau eru
gömul samtök."