Skinfaxi - 01.12.2000, Page 23
ú vilt kannski ekki tala við einhvern sem þú þarft að hafa
samband við eða þú hefur hreinlega ekki tíma til að
spjalla í símann. Þá er besta leiðin að senda tölvupóst.
Það er nokkuð öruggt að tölvupósturinn mun komast til skila
hvort sem sá sem sent er til er við eða ekki. Tölvupóstinn er
líka hægt að nota sem staðfestingu á því sem talað er um og
afrit er hægt að senda til allra viðkomandi eigi fleiri en tveir
þátt í samskiptinum.
Tölvupóstur er líka ódýr og umhverfisvæn leið til að vera í
sambandi. Það er ekki hægt að ímynda sér hversu mörgum
skógum hefur verið bjargað með tilkomu tölvupóstsins.
Milljónir manna senda tölvupóst sín á milli daglega og ef
maður hugsar sér bara að helmingur þeirra myndi senda
bréfið í pósti væru tréin ansi mörg sem myndu falla.
Tölvupóst er líka mjög ódýrt að senda en eini kostnaðurinn
eru þær sekúndur sem þarf að vera í símasambandi á meðan
pósturinn er sendur. Það skiptir heldur ekki máli hvort
tölvupóstur sé sendur í næsta hús eða hinum megin á
hnöttinn kostnaðurinn er ávallt hin sami.
Fundarboðun hefur verið gerð mun auðveldari með tilkomu
tölvupósts. Fyrir nokkrum árum gat það tekið langan tíma og
mörg símtöl að boða nokkrar manneskjur á fund. Með
tölvupósti er hægt að ganga frá fundaboðum og staðfesta á
stuttum tíma og allir fá og sjá sömu skilaboðinn.
Það er samt ekki allt jákvætt við tölvupóstinn. Margir þekkja
það að tölvupóstur sé notaður til að senda ýmsar kynningar
og auglýsingar. Fari einstaklingur á lista, sérstaklega
Ameríska, hjá fyrirtækjum sem selja þjónustu sína á netinu
má búast við því að tölvan fyllist að allskyns auglýsingum
héðan og þaðan úr heiminum. Erfitt er að komast út af
þessum listum en þó hafa nýjustu vefþjónarnir eins og MSN-
Explorer þann möguleika að loka á slíkar sendingar. Hins
vegar er aðeins hægt að loka á póst eftir að hafa fengið eina
eða fleiri sendingu frá viðkomandi.
Tungumálið hefur breyst eftir að tölvupósturinn fór að ryðja
sér til rúms. Alltaf er verið að finna til leiðir til að stytta
textann og margskonar orðatiltæki hafa orðið til á netinu.
Þetta verður svo til þess að fólk sem notar tölvupóst mikið fer
að tala eins og það skrifar.
En þrátt fyrir sína galla er tölvupósturinn kominn til að vera
og á næstu árum eiga möguleikarnir á að "vera í sambandi"
eftir að aukast til muna og það er bara e.h. t-að :) yfir.
Vertu í sambandi
Tölvupóstur félaga UMFÍ
UMFÍ umfi@umfi.is
Skinfaxi umfi@umfi.is
Fréttabréf umfi@umfi.is
HHF hhf@snei-pa.is
HSB katagunn@yahoo.com
HSH hsh@islandia.is
HSK hsk@hsk.is
HSS husavik@simnet.is
HSV kjonj@mmedia.is
UDN gisl.gun@centrum.is
ÚÍA uia@uia.is
UMSB umsb@mmedia.is
UMSE umse@bugardur.is
UMSK umsk@toto.is
UMSS umss@binet.is
USAH usah@mmedia.is
USVH usvh@hunathing.is
USVS usvs@mmedia.is
UMFF fjolnir@mmedia.is
Keflavík keflavik@keflavik.is