Skinfaxi - 01.12.2000, Síða 30
Sérstaða UMFÍ er einfaldlega ekki til sölu
Helga Guðjónsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Grunnskólanum í Hveragerði og stjórnarmaður hjá Ungmennafélagi Islands
eina ferðina enn. Ólympíuleikarnir fóru fram í Sydney og stóð
okkar fólk sig með miklum ágætum. Forsetakosningar fóru
fram í Bandaríkjunum og ekki er enn orðið ljóst þegar þetta er
skrifað hvor frambjóðandinn ber endanlega sigur úr býtum.
Glæpum fjölgar á íslandi og framboð á eiturlyfjum hefur aldrei
verið meira enda eykst salan jafnt og þétt. Sýnist sitt hverjum
um þetta allt saman.
Nýjasta nýtt í sameiningarmálunum er sú hugmynd að
skoða eigi hvort ekki sé skynsamlegt að sameina
Ungmennafélag íslands og íþrótta- og ólympíusamband
Islands. Iþrótta- og ólymíusambandið birti nýlega skýrslu þar
sem sýnt var fram á hagkvæmni þess að sameina þessi
félagasamtök??. Ég tel ekki rétt að sameina þessi
félagasamtök þó svo að fjárhagsiegur ávinningur yrði
nokkur.
Ungmennafélag íslands hefur sýnt það og sannað í áranna
rás að hugsjónir þess eiga samleið með þjóðinni. Að ganga
gegn hugsjóninni og sögunni væri að bregðast, ekki bara
félagsmönnum UMFI heldur ekki síður hugsjóninni sem þetta
öfluga starf hefur byggt á frá upphafið. UMFI hlýtur að verða
sjálfstætt félag áfram og sameining á forsendum gróðavonar
væri höfuðsynd.
Ungmennafélag Islands stóð fyrir miklu og blómlegu
starfi á árinu. Þannig var stórt forvarnarverkefni í gangi í
samstarfi við ísland án eiturlyfja sem hét „Loftskipið" og tókst
mjög vel. Ráðstefna unga fólksins Jeg tarf ekki sjuss sem
haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur í lok verkefnisins var
afskaplega ánægjuleg. í lok júní var haldin menningarvika
að er fallegur vetrardagur og ég sit við gluggann á
skrifstofunni og dáist að veðurblíðunni. Fyrir utan
gluggann eru léttklædd börn að leik og þau Ijóma af
gleði og ánægju alveg laus við áhyggjur okkar fullorðna
fólksins Ósjálfrátt hugsar maður: Hinkraðu aðeins!
Hvaða árstími er? A ekki að vera kuldi og snjór úti?
Það eru nú einu sinni að koma jól. Einmitt! Jólin
koma bráðum og um leið fer að styttast í að árinu 2000 ljúki,
Þessu merkisári sem öll heimsbyggðin beið svo spennt eftir að
rynni upp.
í mínum huga er þetta ár búið að vera ár
kaupmennskunnar. Allt mögulegt og ómögulegt hefur verið
boðið til sölu og mannfólkið hefur keppst við að taka þátt í
kaupæðinu. Allir ætla að græða peninga og helst mikið af
þeim. Mikið hefur gengið á og það læðist að mér sá grunur að
sumir hafi týnt sjálfum sér í þessu öllu saman.
Þegar tímamót verða, eins og þegar nýtt ár er að ganga í
garð, er gott að staldra við og líta yfir farinn veg. Ymislegt gott
hefur orðið á veginum og annað miður gott. Stór hluti
landsmanna hefur það gott en verðbólgan er komin á skrið.
Landsbyggðin berst fyrir tilveru sinni. Sveitarfélög, fyrirtæki
og félagasamtök hafa verið sameinuð og svo eru verkföll hafin
ungs fólks á Norðurlöndum sem bar yfirskriftina Kultur &
ungdom þar sem saman komu ekki færri en 3000 ungmenni
og áttu saman skemmtilega daga í Reykjavík og nágrenni,
m.a. á Selfossi. Unglingalandsmót var haldið í Vesturbyggð
um verslunarmannahelgina og tókst hreint út sagt frábærlega.
Var mótið heimamönnum og ungmennafélagshreyfingunni
til sóma. Mikið var gróðursett og á annan hátt unnið að bættu
umhverfi á vegum hreyfingarinnar á þessu ári sem öðrum.
Auk þessara verkefna móðursamtakanna voru hinir ýmsu
viðburðir á dagskrá aðildarfélaga víða um land. Þegar hugsað
er um allt það mikla starf sem fólk út um allt land er að vinna
koma upp í hugann orðin: „Það er svo gaman að vera saman".
Forystumenn ÍSÍ ættu að hafa þessi orð í huga þegar þeir horfa til
sameiningar við UMFÍ. Það getur nefnilega verið gaman hjá
okkur að vera saman en eingöngu í þeim tilgangi að auka með
okkur samvinnu.
Sérstaða UMFÍ varðandi íþróttir, mannrækt,
umhverfismál og menningu er svo dýrmæt að hún er
einfaldlega ekki til sölu
Ég vil í lokin óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka
ykkur fyrir allt það góða samstarf sem við höfum átt á árinu
sem er senn að enda. íslandi allt.