Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1939, Síða 4
4
VÍKIN G URINN
Víkingurinn.
Með stofnun Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands, F. F. S. í., var lagður
nýr grundvöllur að aukinni og bættri sam-
vinnu milli hinna ýmsu starfsflokka sjó-
mannastéttarinnar. Eru síðan liðin tæp
þrjú ár.
Ennþá hafa aðeins yfirmenn skipanna,
þ. e. fagmenn sjómannastéttarinnar, skip-
að sér undir merki sambandsins. En sam-
vinnan hefir verið hin ákjósanlegasta, og
koma árlega ný félög inn. Og þar eð áhuga-
málin eru alls ekki miðuð við hagsmuni
yfirmannanna eingöngu, eru hinar beztu
horfur á að samvinnan megi leiða til heilla
fyrir sjómannastéttina sem heild.
Hugmyndin um aukna samvinnu sjó-
manna á sér all langa sögu, sem þó eigi
verður rakin hér. Hitt er staðreynd, að
all margir mætir menn meðal sjómanna-
stéttarinnar og úr ýmsum starfsgreinum
hennar, eru þess fýsandi, og telja nauðsyn-
legt að sjómennirnir vinni meira saman fé-
lagslega, en verið hefir. Yfirleitt hafa sjó-
menn mjög skipzt eftir stjórnmálaflokkum
hefir þeim að færa. Það rennur þá oft kalt
milli skinns og hörunds, en hitt er þó meir
um vert og veldur óskiptum fögnuði, þegar
að hann tilkynnir að betur hafi tekizt en
útlit var fyrir, og það þá oft fyrir tilverkn-
að slysavarnanna.
Þegar vinir Jóns Bersveinssonar, þeir,
er til hans náðu, vottuðu honum á þessum
merkisdegi hans, vinsemd og virðingu, þá
má hann og vera viss um það, að víða á hafi
úti voru einnig menn, sem óskuðu honum
og hans alls góðs, og vildu vera með í því
að votta honum verðskuldaoa virðingu og
þakkir fyrir vel og dyggilega unnið starf.
S. E.
í landinu, og hafa stjórhmálaskoðanir oft
torveldað samstarfið innan starfsgrein-
anna, mjög til óþurftar fyrir stéttina sem
heild. Mun jafnvel ekki dæmalaust, að
samstarfið á skipunum hafi mótast af
stjórnmálaskoðunum til hins lakara, og er
það fráleitt.
Samvinna meðal sjómanna um fjárhags-
leg og menningarleg hagsmunamál þeirra,
sem sé haldið utan við stjórnmálaflokka,
og óháð þeim, er því réttmæt og nauðsyn-
leg.
Og ekki er minni-ástæða fyrir sjómenn-
ina, að vinna saman nú, þar sem útvegur-
inn stendur svo höllum fæti, sem raun er á.
„Neyðin kennir naktri konu að spinna“,
ei' gamalt og gott máltæki. Sannast það
nú áþreifanlega á okkar mætu, en miður
framsýnu stjórnmálamönnum. Nú er
hvorki meira né minna en velferð allrar
þjóðarinnar undir því komin, að sjávarút-
vegurinn rétti við. Öðruvísi var nú þetta
fyrir örfáum árum. En reynslan er nú að
sanna bókstaflega, svo að ekki verður ve-
fengt, að það er sjávarútvegurinn og fyr-
irtæki hans, sem er lífæð þessarar þjóðar.
Og sjómannastéttinni er fengið það vanda-
sama hlutverk, ásamt útvegsmönnum, að
halda vörð um þetta f'jöregg hennar. Hér
skiftir því máli að vel takist.
Það er fullkominn vilji þeirra, sem' for-
göngu hafa um framkvæmdir F. F. S. I.,
að geta orðið að liði í því mikla starfi. Með
því er bezt borgið hagsmuniun allra þeirra
einstaklinga, sem sjómannastéttinni til-
heyra.
,,Sambandið er óháð öllum stjórnmála-
flokkum og starfar í einu og öllu á ópóli-
tískum grundvelli'1, stendur í lögum félags-
ins, 3. gr.
Blað það, sem hér kemur fyrir almenn-
mgssjónir er helgað þessum samtökum og
gefið út og kostað að öllu leyti af F. F.
S. 1. Hlutverk blaðsins mun verða það, að