Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1939, Qupperneq 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1939, Qupperneq 11
VlKINGURINN 11 en heyrnartól getur ekki fylgst með í tón- unum jafnvel og gott gjallarhorn. Þeim, sem óvanir eru að byggja mót- takara, en hafa áhuga fyrir því, er heppi- legast að byrja með því að byggja krystal- móttakara. Með því fæst undirstaða fyrir því að kynnast hvernig hringrás vinnur. Mynd 1 sýnir hvernig móttakarinn er tengdur. Spólurnar L1 og L2 eru vafðar á Etronitpípu, sem er 40 mm. í þvermál og 90 mm. löng. Að ofan eru 75 vafningar úr 0,5 mm. spóluvír með tvöfaldri silkiein- angrun, en ca. 6 mm. neðar er L1 vafin úr samskonar vír, en í þeirri spólu eru aðeins 25 vafningar. L1 er loftnetsspólan, en L2 er stillispólan og er hún stillt með 450 sm. hreyfanlegum þétti. Hæfileg stærð fram- hliðarplötunnar er 200X160 mm., og aft- an á hana festist lárétt milliplata 200X 120 mm. I þessar plötur báðar er heppi- legast að nota 3 mm. Etronit. Á milli- plötuna er krystallinn m. a. festur, en á forhliðina er komið fyrir samböndum fyr- ir loftnet, jörð og heyrnartól. Milli sam- bandanna fyrir heyrnartólið er lóðaður blokkondensator C2 1000 cm. Þegar búið er að tengja við móttakarann loftneti og jarðsambandi, er hægt að hlusta á hann. Finnast stöðvar með því að hreyfa þétt- irinn og jafnframt að færa krystalþráð- inn til og frá um steininn þar til bezti ár- angur næst. Með slíku krystaltæki, sem hér hefir verið lýst, er hægt að heyra sterkar út- varpsstöðvar í töluverðri fjarlægð og skipastöðvar alllangt í burtu eftir stað- háttum. Fyrir þá, sem byggja vildu slík tæki, er gott að hafa mynd 2 til hliðsjónar, en vegna þeirra, sem vildu taka stærra skref eða halda lengra áfram, birtist hér mynd (mynd 3) af einföldum eins lampa mót- takara. Við byggingu slíks móttakara má nota sama kassa og notaður var við kryst- alinn, einnig má nota sama hreyfanlega þéttirinn og spólan breytist nokkuð, eins og myndin sýnir. Að svo stöddu verður ekki gefin nánari lýsing á slíku tæki, en ef til vill verður það gert síðar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.