Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 2
hljómgrunn í hjörtum sjómanna, og benda
höfundi þeirra á, að lesa blöð sjómanna á
annan hátt, en þann, sem hann hingað til hefir
gert, áður en hann fellir yfir -þeim ranga for-
sendulausa dóma. Það mun honum og Ægi fyr-
ir beztu.
Það fer ekki hjá því, að sú spurning vakni,
hvort sjómannastéttin íslenzka sé svo öflug,
að hún geti staðizt straum af útgáfu tveggja
myndarlegra blaða? Að baki öðru þeirrastend-
ur fjölmennt og öflugt samb. farmanna og
fiskimanna, en að baki hinu félag stýrimanna.
Telja má fullvíst, að bæði blöðin í framtíð-
inni muni standa fast um öll hagsmunamál
sjómanna og ekki berjast innbyrðis. Víking-
urinn telur slíkt ekki farsælt í baráttu sjó-
manna. En ekki fer hjá því að álykta, að öll
skynsemi mæli með því, að félagasamtök
sjómanna yfirleitt og sambönd beri gæfu til
að sameinast um eitt málgagn, sem stendur
öruggum og föstum fótum — bæði hið innra
og ytra. Er margt, sem styður þetta álit.
Það er nauðsynlegt sjómönnunum að sam-
stilla krafta sína til baráttu fyrir hagsmuna-
málum sínum. Dreifing kraftar er spilling í
hverri mynd, sem hún kemur fram. Þó að ef
til vill slíkt myndi ekki gæta hið innra á milli
hinna tveggja blaða — sem þó að ýmsu leyti
myndi erfitt að komast hjá, hvað fjölbreytni
efnis snertir — þá er óhjákvæmileg barátta
hið ytra — bæði með tilliti til kaupenda blað-
anna, svo og, hvað viðvíkur auglýsingum, þar
sem bæði blöðin myndu í því efni keppa á
sama markaði. Ii því kæmi ekki eingöngu fram
dreifing krafta þeirra, sem vilja vinna að
hagsmunum sjómanna, heldur beinlínis and-
stæður, sem eftir öllum eðlilegum sólarmerkj-
um ættu að standa saman. Slíkt myndi verða
til tjóns báðum aðilum, um leið og hið gagn-
stæða yrði til hins bezta. Sundrungin leiðir til
falls — sameiningin til sigurs.
Hlutverk sjómannablaðs.
Hlutverk sjómannablaðs er vitanlega ákaf-
lega mikið og fjölbreytt. Á síðum þess er vett-
vangur sjómanna til að ræða áhugamál sín og
stéttar sinnar. Þar með er alls ekki sagt að
þeir, sem í blaðið rita, eigi ætíð að vera sam
mála um mál sjómanna. Rökstuddar álykt-
anir eiga að koma þar fram án tillits til þess,
hvort þær, ef til vill, stynga í stúf við skoðanir
og álit annarra en greinarhöf tndarins. Á þess-
um vettvangi eiga sjómenn og unnendur þeirra
að deila, vega og meta og ræða það, sem þeim
er hugstæðast. Þar eiga að koma fram fagleg-
ar greinar um það, er lítur að sjó og sjó-
mennsku. Þar á að koma fram margs-
konar fróðleikur um hugðarefni sjómanna.
Þar eiga að koma fram hugmyndir um
framfarir og bætur á öllum sviðum í samræmi
við kröfur tímans hverju sinni. Þar á að berj-
ast fyrir framfaramálum sjómannastéttarinn-
ar á alla lund. Þar á að vera skemmtiefni,
gáski og glettni. Þar eiga að vera myndir úr lífi
og starfi sjómanna.
I einu orði sagt: Sjómenn þurfa að eiga eitt
öflugt, skemmtilegt og vandað mánaðartíma-
rit, ritað að mestu leyti af þeim sjálfum —
þannig úr garði gert, að allir sjómenn, hvort
heldur þeir eru félagsbundnir í Farmanna- og
fiskimannasambandinu, Stýrimannafélaginu,
Sjómannafélaginu hér í Reykjavík, eða í hin-
um ýmsu verstöðvum landsins, teíjj sér skylt að
styðja og efla slíkt rit. Á þann hátt myndi
þess mestur kostur, að slíkt rit næði tilætluðum
árangri til hags og blessunar fyrir sjómenn og
sæfarendur.
Yíkingurinn mun efla sókn sína fyrir sjó-
menn og hagsmunamál þeirra — og um leið
styrkja vörn sína útávið gegn öflum þeim,
sem vilja að honum vega. En hann mun með
sanngirni taka í hönd þeirra, sem vilja ótrauð-
ir berjast fyrir heill og hag sjómanna til
verulegs árangurs. Hann mun í nútíð og fram-
tíð vinna að því, að sjómenn sjái gildi sam-
vinnunnar og sameiginlegra átaka til öryggis
fyrir lifandi og komandi kynslóðir, sem leggja
leið sína út á hafið.
VÍKINGUE
2