Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 16
ekki ilheyrði hafinu, eitthvað, sem kom og hvarf. Kamelíus hafði skarpa sjón og hann var ekki lengi að átta sig á að hér var skip, sem stefndi til lands. Eftir hálftíma vissi hann, að skipið var brigg. En hvað var hún að flækjast upp að skerjunum, það furðaði hann sig á. Þeir fóru að furða sig á því sama þarna úti, því að allt í einu gerði „bryggin“ kúvendingu, sneri upp í og lá, hjó og stampaðist. En Kamelíus sá strax að skipið rak og rak í áttina að Hamra- flúð, þar sem hafið braut á tveggja faðma dýpi. Þeir áttuðu sig líka á hættunni þarna úti. Eld- rák þaut hvæsandi upp í loftið, þar sem blýgrá skýin þutu áfram. Kamelíus góndi með áhuga á eldrákina. Svo spýtti hann um tönn og stóð upp. Hægt gekk hann niður að bryggjunni, þar sem kæna föð- ur hans var. Honum gekk illa að reisa sigluna. því að rokkviðumar voru snarpar, en loks tókst það, og hann losaði um seglið og leysti bátinn. Það er sama hvað sagt hefir verið um Kamelíus, og hvað um hann er hægt að segja. Eitt kunni hann, og það var að sigla bát. Eins og lítill sæ- gammur starði hann út eftir hafinu. Hann smaug á milli brotanna, nauðbeitti, sigldi liðug- an vind, slagaði og hleypti undan. Hann Kamelíus „með lélega þroskaðar gáfur“ var á leiðinni út að nauðstöddu skipi. Það voru mörg eftirvæntingarfull augu, sem góndu á fleytuna, sem nærri flaug á móti vind- inum og nálgaðist skipið. „Aldrei hefi ég séð annan eins hafnsögumann í bráðum fjörutíu ár, sem ég hefi siglt“, sagði skipstjórinn. „Ég hefði þorað að bölva mér upp á, að það væri gersamlega ómögulegt, að sigla smábát í slíku veðri og sjó. Hann hefur siglt áður, þessi náungi“. Kamelíus leit ekki upp. Hann vissi hvar skip- ið var og hann hafði nóg að gera við að smiúga á milli brotanna. Hann þekkti hafið, hann Kamelíus, og hann gerði gælur við það, reyndi hálft í hvoru að spekja það eins og æstan vin, með bví að tala við það. Bryggin var komin hættulega nálægt Hamraflúð, en Kamelíus var heldur ekki langt undan. „Nú siglir hann beint á skerið", hrópaði einn há.setinn óttaselgínn, þegar báturinn þaut eins VÍKINGUE og örskot og stefni á flúðina. En Kamelíus þekkti svæðið eins og vasann sinn, svo að hann var ekki að stranda. Hann lagði örlitla lykkju á leiðina, komst úr hættunni, og eftir tvo slagi, kallaði hann: „Kastið þið til mín enda“. Fangalínan hvein gegnum loftið. Kamelíus greip hana og dró inn — hann vissi að eitthvað haldbetra fylgdi eftir. Hann fór að öllu rólega. Kaðalinn batt hann um þóftuna, meðan hann heflaði seglið og batt stýrið. Svo flutti hann kaðalinn fram í, brá honum um stafnlokið og batt endann rækilega. Hann þorði ekki nær, vegna brims, því ef báturinn hans pabba brotn- aði, þá myndi líklega verða stökkt í bakhlutan- um á honum sjálfum. Svo spýtti Kamelíus í lóf- ana og handstyrkti sig eftir kaðlinum að skip- inu. Skipshöfnin hafði aldrei séð hafnsögumann koma um borð í skip á þennan hátt. En Kamelíus vissi hvemig átti að gera það. Hann sveiflaði sér léttilega yfir borðstokkinn. „Þið eruð komnir nokkuð langt inn“, sagði hann og mældi fjarlægðina að Hamraflúðinni. „Heldurðu að þú getir komið henni inn“, sagði skipstjórinn órólegur, „eða eigum við fyrst og fremst að hugsa um að koma piltunum í land og láta hana fara------------?“ „Þú lætur setja meiri segl, skipstjóri! Fram- hyrnu og brandaukasegl og svo hugsa ég að bramseglið klári sig, til að byrja með“. Það kom jafn rólega og yfirvegað eins og Kamelíus hefði aldrei annað gert en skipa fyrir um seglbúnað á briggskipi í stormi. „Þú gefur rórmanninum stefnuna“, sagði skipstjórinn. „Eg tek við stýrinu sjálfur“, sagði Kamelíus rólega og gekk að stýrishjólinu. Briggin lagðist yfir og flatrak beint á flúð- ina. ..Ertu vitlaus“, öskraði skipstjórinn, „ætlarðu að stranda skipinu“. „Það er ég, sem stýri skútunni“, sagði Kamel- íus og gerði röddina harða og hvassa, eins og faðir hans gerði stundum. Skinstióranum til stórrar furðu, slapp skipið. „Það mátti ekki tænara standa“, sagði hann og burrkaði af sér svitann. ..O-jæja, ég hafði heilan meter hvorum meg- in“, sagði Kamelíus, „það er mjó renna norðan í Hamraflúðinni". 16

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.