Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 34
maður Ólafur Ketilsson frá BólstaÖ í Mýrdal.
(Yfirgefinn undir Bjarnarey).
Langvinnur, áttæringur; 18 manna áhöfn.
Formaður Árni Einarsson bóndi á Búastöðum.
Farsæll, feræringur; 8 manna áhöfn. For-
maður Jón Bjarnason bóndi á Oddsstöðum.
(Yfirgefínn undir Bjarnarey).
Mýrdælingur, sexæringur; 14 manna áhöfn.
Formaður Þorsteinn Jónsson, síðar alþm. að
Nýjabæ.
Neptunus, áttæringur; 18 manna áhöfn. For-
maður Símon Símonarson bóndi frá Steinum
undir Eyjafjöllum.
Svanur, aðrir nefna hann Farsæl, sexær-
ingur; 14 manna áhöfn. Formaður Oddur Pét.
ursson bóndi frá Raufarfelli undir Eyjafjöll-
um.
Eyfellingur, áttæringur; 18 manna áhöfn.
Formaður Magnús Þorsteinsson bóndi að
Rauðsbakka undir Austur-Eyjafjöllum.
Lítillátur, sexæringur; 14 manna áhöfn. For-
maður Þórður Tómasson bóndi í Varmahlíð
undir Eyjafjöllum.
Trú, sexæringur; 14 manna áhöfn. Formað-
ur Jón Þórðarson frá Miðey í Landeyjum.
Skipstjórar - skólabræður
Skipstjórarnir Finnur Finnsson og Ellert
Schram áttu hvor um sig merkilega afmælis-
daga nú í þessum mánuði. Hinn fyrrnefndi
varð 80 ára 4. febrúar síðastl., en hinn síðar-
nefndi varð 75 ára 11. febrúar síðastliðinn.
Árið 1889 tóku þeir báðir próf í siglingafræði
og voru síðan skipstjórar samfellt í aldar-
fjórðung. Þeir hafa lifað það, að sjá, íslenzka
skipastólinn vaxa og aukast frá opnum bát-
um og seglskipum upp í nýtzku eimskip og
mótirskip. Æfi þeirra er orðin löng og við-
burðarík, enda kunna þeir frá mörgum fróð-
leik að segja frá vaxtarárum íslenzkra nú-
tímasiglinga, sem betur færi að félli ekki í
gleymskunnar haf. Þess.ir gömlu skólabræður
og ,,víkingar“ hafa nú um 20 síðastliðin ár
starfað saman að seglasaum hér í bænum og
er vonandi og óskandi, að þeir enn um skeið
megi búa út traust og góð segl skipum þeim,
er renna til móts við fornvin þeirra, Ægir sæ-
konung. Árnaðaróskir fjölda vina þeirra munu
fylgja þeim, og „Víkingur“ vill af heilum hug
taka undir allar þær óskir.
VÍKINGUR
84