Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 37
framkvæmdir í þeim efnum sitja fyrir flestu öðru. Margir íslenzkir sjómenn hafa komið til Noregs, en sá, sem þangað kemur og ferðast þar eitthvað með ströndum fram, kemst fljótt að raun um, að hér býr mikil siglingaþjóð, sem vitað hefir hvað til síns friðar heyrði. Norska þjóðin hefir ekki yppt öxlum og star- að hálfbrostnum skilningssljóum augum fram í tímann en látið sig litlu skipta hlutskipti og aðstöðu þeirra, sem leita þurfa lands í norsk- um höfnum, eða sigla þurfa þar með ströndum fram. Þar hefir verið búið svo um hnútana, að hver sem sæmilega er að sér í sjómennsku og siglingafræði, getur hiklaust siglt þar leiðsögu- laust á löngum köflum í Skerjagarðinum, því að alls staðar eru vitarnir, þar sem þeirra er þörf og kortin ágæt. Þetta vita íslenzku sjómennirnir orðið mæta vel. Þeir munu því ekki öllu lengur taka þegj- andi við skitnum sextíu þúsundum krónum tii vitanna þegar þess er gætt, að árlega eru teknar af skipunum 400.000 kr., sem renna eiga til vitanna og útgjöld ríkisins nálgast nú óðum tuttugu milj. kr. á ári. Þegar litið er á þessi atriði, ætti að vera aug- Ijóst mál, hve fádæma roluskapur það er að rísa ekki upp gegn ranglætinu og krefjast um- bóta í þessum efnum. Slíkur roluskapur er ekki samboðinn íslenzkum sjómönnum — hann er smánarblettur á stétt þeirra, sem verður að afmá tafarlaust. Um leið og minnst er á þessi mál, vil ég nota tækifærið til þess að mótmæla því, sem vita- málastjóri hélt fram í erindi, er hann flutti í útvarpinu fyrir skömmu. Hann sagði þar m. a., að vitar á íslandi væru um 120 talsins, en þeir eru aðeins um 80, sem hægt er að kalla því nafni, með nokkurri sanngirni. Enn fremur kvað hann framlkvæmdir í vitairfálum með meira móti hin síðari ár, en mörgum virðast þær með minna móti og það jafnvel svo, að nærri stappar kyrstöðu. Um vitafjöldann mætti ef til vill segja það, að fjöldinn einn skiftir ekki öllu máli. Ljós- magn þeirra þarf engu síður að vera nægilegt og þeir þurfa að vera settir þar, sem hægt er að hafa þeirra sem fyllst not. Á þessu hvort- tveggja og einkum þó hinu síðarnefnda, hefir orðið töluverður misbrestur. Hvernig er til dæmis hægt að réttlæta vitann við Ingólfs- fjörð. Honum þarf að mótmæla og það kröft-i uglega. Þeir, sem kunnugir eru siglingaleið- inni fyrir Strandirnar, frá Hornbjargi og inn á Norðurfjörð eða Ingólfsfjörð vita, að hún er einhver varasamasta siglingaleið hér við land, unz komið er fyrir grunninn norðaustur af Sel- skeri. Þeir vita, að ekkert er til að styðjast við á þessum slóðum annað en áhöldin um borð í skipinu. Þeir vita, að ef vegalengdin frá Horni austur fyrir grunninn er skakkt áætluð, verður stefnan fyrir grunnin og einnig fyrir Selsker líka skökk. Afleiðigum slíkrar skekkju þarf ekki að lýsa. Skip, sem ætla inn á Ingólfsfjörð, verða einnig að afla sér landkenningar af Selskeri, hvað sem það kostar. Hve auðvelt það er, þeg- ar komið er utan af hafi, geta víst flestir gert sér hugmynd um, þótt þeim hafi verið það of- vaxið, er settu vitann inn í Ingólfsfjörð. Strand- ferðaskipin hafa oft orðið að heyja þarna harða baráttu við að komast inn á Norður- fjörð. Sú barátta hefir æði oft verið tvísýn, en alltaf haft góðan endi. Þetta fer fyrir ofan garð og neðan hjá flestum öðrum en þeim, sem skipunum eiga að stjórna — aðrir verða þess ekki varir. Ég vil nú gerast svo djarfur, að fara fram á það við vitamálastjórnina, að hún færi vitann við Ingólfsfjörð, og setji hann upp þar, sem hægt er að styðjast við hann, þegar komið er vestan fyrir Strandir og leyta þarf lands á Norðurfirði eða Ingólfsfirði. Geri hún þetta, mun hún vaxa í áliti hjá öll- um sæmilegum mönnum, því að það er mann- legt að kannast við yfirsjónir sínar og bæta úr þeim, en að bíta sig fasta í axarsköftin og vitleysurnar er heimskra manna háttur og lít- illa karla. Á Breiðdalsvík var ekki hægt að byggja smávita fyrir hina brýnustu þörf. Til þess vant- aði fé. En samkvæmt sögusögn kunnugra manna á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, voru til VÍKINGUR 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.