Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Qupperneq 3
11) Sigurður Jörundsson, stýrim., í. í Hrísey 30.
apríl 1917, lauk próii 1940.
Þessir menn fórust báðir í árás á l.v. „Fróða“
hinn 11. marz s. 1.
12) porsteinn Magnússon, skipstj., f. í Kálíavík, N.-
ísafj.s. 13. apríi 1913.
13) Hallgrímur Pétursson, stýrim., f. í Hnífsdal 16.
des. 1916, lauk prófi 1940.
Þessir menn fórust báðir með I.v. „Pétursey"
á leið til Englands líklega milli 10.—15. marz s.l.
Ennfremur hafði annar hásetanna, sem fórst
með „Fróða“, Guðm. Stefánsson frá Hólum í
Dýrafirði, sótt um inngöngu í skólann á næsta
hausti.
Þá er fyrir rúmu missiri látinn einn hinn
elsti og þekktasti af fyrverandi kennurum þessa
skóla, Magnús Magnússon, skipstj. og fram-
kvstj. Hann lézt á sóttarsæng hinn 4. sept. s.l.
Magnús byrjaði kennslu við skólann árið 1900,
fyrst sem settur aukakennari, en var skipaður
fastur kennari við skólann árið 1902 og kenndi
til ársins 1917. Eftir það var hann í nokkur ár
prófdómari við skólann. Magnús var maður af-
bragðsvel lærður í sínu starfi og þótti ágætur
kennari'. Annars var hann svo merkur maður
og þekktur með ísh sjómannastétt, að óþarft er
að fara um hann mörgum orðum hér.
Ég bið þá, sem hér eru inni, að heiðra minn-
ingu allra okkar horfnu félaga og starfsbræðra,
með því að rísa úr sætum.
Sé litið burt frá þeim áhyggjum og því tjóni,
sem þessir utanaðkomandi atburðir hafa valdið
okkur, verður þetta skólaár að teijast frekar
hagstætt fyrir þennan skóla. Aðsókn að honum
var með mesta móti og meiri að sumum deildum
hans, en hægt var að sinna, og sú mesta, sem
orðið hefir síðan hin nýju lög gengu í gildi.
Veldur þar sjálfsagt miklu um hin góða afkoma
sjómanna yfirleitt á s.l. ári, sem eins og kunn-
ugt er, var þeim mjög hagstætt að þessu leyti.
Heilsufar nemenda og kennara hefir mátt kall-
ast gott, þrátt fyrir slæman Innflúenzufaraldur,
sem geysaði um miðjan veturinn og varð þess
valdandi, að skólum var almennt íokað hér í
bænum um 2—3 vikna tíma. Þessi skóli var að
því leyti betur settur en aðrir, að lokunin varð
ekki nema 2 dagar, og þá fékk skólinn sérstakt
leyfi til að halda áfram. Af miili 80 og 90 pilt-
um, sem á skólanum voru, hættu 3 fyrir tilskild-
an tíma vegna veikinda. Af þeim ætlaði einn að
ganga undir burtfararpróf.
Eins og kunnugt er, notar skólinn mikið af
bókum, sjókortum og öðrum kennslutækjum frá
Norðurlöndum, og því hefir samgöngubannið
við þau lönd valdið nokkrum erfiðleikum. Úr
þessu rættist þó allvel á s.l. hausti vegna ferðar
„Esju“ til Petsamo, en þá náðist nægilegt af
bókum til að komast af með í vetur. Hvernig fer
með þetta að vetri er aftur á móti ekki hægt um
að segja sem stendur, og vel getur þar horft til
vandræða ef ekki rætist úr á einhvern hátt.
Skólinn byrjaði starfsemi sína á venjulegum
tíma, og starfaði í 6 deildum eins og venja er á
seinni árum. Undirbúningsdeildirnar A og B
hættu í janúarlok, og þá gengu nemendur þeirra
undir próf upp í þær deildir, sem þeir eiga að
flytjast í að vetri. Þetta er eins og kunnugt er
ný tilhögun við skólann og miðar að því að bæta
kennsluskilyrðin í efri deildunum, með því að
hleypa ekki upp í þær öðrum en þeim, sem hafa
allgóð skilyrði til að standast burtfararpróf að
vetri. Þá hætti einnig námskeiðsdeildin fyrir
Hið minna fiskimannpróf og nemendur hennar
18 að tölu gengu undir burtfararpróf. Af þeim
stóðust 15 próf, en 2 hinna fengu sérstakt leyfi
til að ganga aftur undir próf í marz og náðu þá
báðir prófi.
2. bekkur Farmannadeildar starfaði til marz-
loka, og Ioks hætti kennsla í skólanum að aflokn-
um kennslustundum hinn 8. apríl og próf byrj-
uðu þann 18. Þannig hefir skólinn starfað meö
eðlilegum hætti þetta skóla-ár, þrátt fyrir stríð
og veikindafaraldur, en að sjálfsögðu hefir
rekstrarkostnaðurinn farið nokkuð fram úr á-
ætlun vegna sívaxandi dýrtíðar, en þó hvergi
meir en við mátti búast eftir ástæðum.
Þá vil ég geta þess með þakklæti, að hinn 15.
marz var mér afhent 4000 kr. dánargjöf til skól-
ans frá frú Elísabetu Gunnarsson, ekkju Jóns
Gunnarssonar, Samábyrgðarstjóra. Gjöfinni á
að verja til kaupa á gagnlegum hlutum eða til
skreytingar í sambandi við væntanlega bygg-
ingu nýs skólahúss. Gjöf þessi er gefin til minn-
ingar um eiginmann gefandans.
8
VÍKINGUK