Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 8
Uppsögn Vélsfjóraskólans
eftir 25 starfsár
Nýlega fóru fram próf í Vélskólanum, og út-
skrifuðust að þessu sinn 4 nemendur. Er þetta
25 starfsár skólans. Alls hafa útskrifast úr skól-
anum 244 vélstjóraefni, 32 vélgæslumenn, og
auk þess 52 úr rafmagnsdeild skólans.
Þegar Vélskólinn var stofnaður 1915, var það
vitanlega efst á baugi að fullnægja þörf skipa-
flotans um vélfróða menn, en hann var þá í ör-
um vexti, og ný skip, millilandaskjpin, í upp-
siglingu.
En það er athygiisvert, að nemendur Vélskól-
ans hafa hafnað víðar en á skipunum. Þeir
stjórna nú flestum stærstu orkustöðvum á land-
inu, bæði vatnsorkustöðvum og verksmiðjum.
Margir eru vinnuformenn og forstjórar í vél-
smiðjunum og enn aðrir eftirlits- og skoðunar-
menn skipa og véla.
Hraðfara aukning véltækninnar í landinu út-
heimtir að sjálfsögðu vélfróða menn í nálega
hverri starfsgrein, og er því atvinnusvið þeirra
manna mjög víðtækt. Þetta skyldu menn, og um
skeið var Vélskólinn vel sóttur, og vélstjórum
fjölgaði. Undanþágumenn sem grípa þurfti tii
á skipin í byrjun, voru leystir af hólmi af ungum
og yfirleitt dugmiklum kunnáttumönnum. Var
þetta að sjálfsögðu hin rétta leið við vaxandi
atvinnuveg og reyndist hin farsælasta.
En sökum þess, að vélstjóraefni þurfa að
sækja nokkurn hluta af sérnámi sínu til véla-
verkstæðanna, þeir vinna þar í fjögur ár, þá
allra manna lengst við skólann, eða í 40 ár.
Samstarfsmaður hans í mörg ár sem siglinga-
fræðikennari var Magnús Magnússon, sem fyrr
segir, og annar, Guðm. B. Kristjánsson, sem
enn er fastur kennari við skólann, og sem næst
Páli hefir unnið honum allra manna lengst, eða
1 34 ár samtals. Ég býst við að þess séu ekki
mörg dæmi, en Guðmund hefir ekki vantað í
eina einustu kennslustund síðan hann kom að
skólanum. Þá hefir Einar Jónssoh magister
verið aðaltungumálakennari skólans í 20 ár, og
loks var M. E. Jessen, núverandi skólastjóri
vélskólans, fastráðinn vélfræðikennari við skól-
ann meðan Vélskólinn var deild úr Stýri-
mannaskólanum á árunum 1911—1915, en
eftir það kenndi hann vélfræði við skólann
í mörg ár, eða til ársins 1932. Ennfremur
hefir Sveinbjörn Egilsson, fyrrv. ritstj., haldið
fyrirlestra við skólann í 19 ár og var auk þess
prófdómari við skólann á árunum 1915—1931.
Að nefna alla stundakennara eða prófdómara
VÍKINGlfR
skólans hér, yrði of langt mál, en geta má þess,
að í þeirra hópi eru ýmsir af þekktustu mennta-
og athafnamönnum þessa lands.
Fyrir hið mikla starf, sem allir þessir menn
hafa lagt fram í þarfir skólans á umhðnum
árum, leyfi ég mér að færa þeim hinar ágæt-
ustu þakkir fyrir skólans hönd. Ég bæti hér við
samskonar þakklæti frá sjálfum mér til þeirra,
sem ég hefi notið samstarfs við þann stutta
tíma, sem ég hefi verið við skólann.
Um leið og ég hér með segi skólanum slitið
fyrir þetta skólaár, vil ég að lokum bera fram
þá ósk, að Stýrimannaskólinn megi um alla
framtíð verða íslenzkum æskumönnum eftir-
sóknarverður áfangi í baráttu þeirra til fjár
og frama, og að frá skólanum megi á hverjum
tíma renna nýtt og þróttmikið blóð til hinna
ýmsu greina sjávarútvegs okkar, honum til
viðhalds og eflingar, skólanum til sóma, en landi
og lýð til gagns og blessunar.
8