Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 11
Það voru morðin á íslenzku sjómönnunum, sem gáfu tilefni til athugunar og varfærni. Vegna þeirra atburða voru Englandssigling- arnar stöðvaðar, meðan rannsókn fór fram á því, hvort hægt væri að fá meira öryggi fyrir menn og skip en verið hafði. Eins og á stóð, voru sjómenn ekki ginkeyptir að láta senda sig út á hafið til slátrunar. Ef til vill verður það talið, að þeir hafi misst kjarkinn við fyrstu raun. Við því er ekki neitt að segja. Þeir dæma, sem vilja, og aldrei koma til með að sigla. Það er ekki nýtt, að krafizt sé af sjómönnun- um, að þeir geri skyldu sína. Nú er krafizt af þeim, að þeir láti ekki öflun verðmæta úr djúp- um hafsins niður falla. Að þeir sigli frá, til og með landinu með varning, svo landslýðurinn þurfi ekki að herða sultarólina, eða taka upp „lífsvenjubreytingu“, sem stríðstímar væru til kjörnir til að kenna mönnum. Samtímis þessum þegnlegu kröfum er þeim ámælt fyrir, að flana ekki hugsunarlaust og öryggislitlir út í sívax- andi hættur. Sjómenn munu gera skyldu sína nú, sem fyrr, eins og aðrir góðir þegnar þjóð- félagsins. Sér að skaðlausu mættu ýmsir aðrir taka þá sér til fyrirmyndar. P. L. segir að orsök stöðvunarinnar sé að kenna mistökum forráðamanna sjómannasam- takanna. Þetta er ekki rétt. Sjómenn þeirra skipa, sem voru í höfninni, þegar siglingarstöðv- unin var ákveðin, neituðu að fara nema bætt öryggi fengist, Þeir fólu sínum forustumönn- um að ræða við útgerðarmenn og atvinnumála- ráðherra, sem sameiginlega tóku þá ákvörðun, sem að framan getur. f 41. tbl. Tímans skrifar einhver J. J. grein með yfirskriftinni: „Sjálfsvörn“.'Þessi sjálfs- varnargrein er ásökun á sjómenn vegna sigl- ingarstöðvunarinnar. Greinin ber með sér, að höfundurinn hefir ekki snefil af sjómanns þekkingu. Hálf greinin er bollalegging út af grein P. L. Falla þær í sömu átt, það sem það nær. Annars er J. J. ýmist kominn aftur í Napoleonsstyrjöld eða upp í sveit á íslandi, og hingað og þangað þar á milli. Þar sem uppi- staðan í grein J. J. er tekin úr grein P. L., þá er því svarað hér að framan, en tveggja atriða verður þó sérstaklega að geta, þar sem þau eru ýmist óprúttin eða ósönn. J. J. segir að öll frystihús landsins séu full af fiski, sem ekki fáist fluttur út, vegna siglingabannsins. Sú vel- megun, sem leiddi af starfi hraðfrystihúsanna, sé að snúast upp í hallæri, sem geti orsakað ríkinu stór mikil töp. Tvö íslenzk skip hafa annast útflutning hraðfrysta fiskjarins til Englands. „Brúarfoss“ og „Artic“, skip fiskimálanefndar. Brúarfoss hefir siglt frá stríðsbyrjun. Hann kom til Reykjavíkur um páskana úr Englandsför. Þeg- ar affermingu var lokið, lá hann innan við viku aðgerðarlaus, þar til siglingarbanninu var af- létt. Artic lá fullfermd og tilbúin til utanlands- ferðar löngu áður en siglingabannið var sett á. Töfin á burtferð skipsins var talin manna á milli af sölutregðu fiskjarins, enda staðfestir Jón Árnason forstjóri S. í. S. þetta í eftirmæl- um eftir Runólf heitinn Sigurðsson í 38. tbl. Tímans, þar sem hann segir að Runólfur heit- inn hafi sagt sér, að hann hafi ákveðið að fara út með fyrstu ferð til Englands. Samningar um sölu þessa árs framleiðslu af frosnum fiski, hafi staðið yfir frá því fyrir áramót, og gekk ekkert eða rak. Af þessu sést, að sjómennirnir eiga ekki sök á erfiðleikum hraðfrystihúsanna. Það, sem ég kalla óprúttinn rithátt J. J., er í þessari klausu: „Engum getur dottið í hug, að þó að skotið væri með vélbyssum á bæi í sveit, eða bændafólkið við vinnu, að allir sveitamenn myndu þess vegna hætta að vinna að öðru en því, að grafa sér skotheld byrgi“. Þarna er verið á óviðeigandi hátt, að drótta því að sjó- mönnunum, að þeir af hræðslu hafi flúið frá skyldustörfunum á sjónum. Ég ætla ekki að véfengja hugrekki bændafólksins. Þeir eru samt mannlegir eins og við sjómennirnir. Trú- að gæti ég því, að þeir stöldruðu við og hugs- uðu ráð sitt, ef t. d. skotin yrðu í bál og rústir nokkur sveitabýli, nokkrir tugir karla, kvenna og barna yrði drepin á jafn miskunnarlausan hátt og sjómennirnir hafa verið. Ég ætla ekki að mikla hætturnar á sjónum, en trúað gæti ég því, að J. J. vildi fá 10 sjómannsgjöld, eins og aðrir sendlar þess opinbera, ef hann hefði þá hugrekki til að koma með eina Englands- ferð. Það er ofur einfalt og krefst einskis hug- rekkis, að kasta fram á prenti, að þessi eða hin stétt þjóðfélagsins sé hugrakkari á hættu n VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.