Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Síða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Síða 12
stundu. Eitt er víst, að illkvitnislegar slettur leysa ekki vandamálin. Til þess þarf manndóm, sem nægilegt er af í sjómanna og bændastétt- um. 1 44. tbl. Tímans er víðavangsgrein um sigl- ingastöðvunina. Þar segir svo: ,,Það má heldur ekki þvinga neinn til að sigla. Menn geta farið á skipin sem sjálfboðaliðar, og hefðu þeir þá forgangsrétt, sem hefðu verið á þeim áður. Á þennan háttmyndi áreiðanlega fást meir en nóg af hæfum mönnum“. Þessi klausa er tekin hér upp til að sýna rithátt bændablaðsins í garð sjómanna. Hvernig ætlar greinarhöfundur að fá meira en nóg af hæfum sjálfboðaliðs-sjó- mönnum ef sjómennirnir vilja ekki sigla sjálf- ir? Heldur hann að þeir sjómenn, sem ákveðið höfðu að sigla ekki, myndu sækja um borð aft- ur, þegar sjálfboðaliðarnir væru komnir í stað fyrri félaga? Þessi klausa blaðsins virðist sett fram sem hótun við sjómenn, að þeirra sé ekki þörf meira en góðu hófi gegni, að það sé alltaf hægt að fá meira en nóg af hæfum sjálfboða- liðum ef sjómennirnir ekki sitji og standi eins og þeim er sagt, eða Tímanum þóknast að vera láta. Nú veit þessi greinarhöfundur, að fram- leiðslan til lands og sjávar er að fara í mola, vegna þess að vinnuaflið flykkist í Bretavinn- una. Samt staðhæfir hann að meira en nóg af hæfum mönnum fáist til að fara á skipin sem sjálfboðaliðar, ef til dæmis sjómennirnir færu í Bretavinnuna eins og bændur landsins gera nú. Þetta sjálfboðaliðshjal blaðsins er ekkert annað en hugarórar sjúks ímyndunarafls, sem hefir löngun til þess að knésetja þann sem er sterkari, en hefir ekki afl til þess. II. Allir, sem rita í Tímann um siglingarstöðv- unina, telja að siglingarnar verði að hefjast að nýju það allra bráðasta, ef íslendingar eigi að geta lifað sem menningarþjóð í nútíð og fram- tíð. Að öll skip verði að vopna, sem um höfin sigla og með ströndum fram, einnig er talið, að skipin verði af okkur tekin, ef þau liggja að- gerðarlaus. öryggis-uppástungur vegna vaxandi siglingarhættu eru í aðaldráttum þessar: For- sætisráðherra, Hermann Jónasson, telur, að um tvær leiðir sé að ræða. „Herskipafylgd, sem sennilega fæst ekki, eða eigendur skipanna vopni hin íslenzku skip eða geri hvorttveggja". Pálmi Loftsson bendir á sem sína skoðun, að bezta öryggið fyrir sjómennina og skipin sé að vopna skipin eins vel og föng eru á og láta þau sigla samflota. J. J. segir: ,,Ef þjóðin vill grotna niður í eymd og vesaldómi, þá hættir hún ein af öllum siglingaþjóðum að fara út á hafið. Ef þjóðin vill verja líf sitt, frelsi sitt, eignir sínar og manndóm, þá vopnar hún skip sín og ver sig á grundvelli sjálfbjargarinnar“. Svo mörg eru þau orð J. J. Það er athyglis- vert í þessu sambandi, að engir þessara greina- höfunda leggja hið minnsta upp úr 25 ára varnarleysis og hlutleysis yfirlýsingu þjóðar- innar. Þeir vilja skilyrðislaust kasta því fyrir borð og fá í staðinn byssuhólka. Að vísu hafa hernaðaraðgerðirnar á sjónum hraklega leikið varnarleysi okkar og hlutleysi, svo full ástæða er til að örvænta um að það verði okkur hlífð- arskjöldur úr þessu, en var ekki varnarleysi og hlutleysi þjóðarinnar freklega skert með her- tökunni 10. maí s. 1. ár? Enginn talaði þá um að vopna landslýðinn til varnar, eða að aldar- fjórðungs varnarleysis og hlutleysisyfirlýsing- um þjóðarinnar væri á glæ kastað. Hefir ekki hertakan að einhverju leyti leitt af sér þær aðgerðir á sjónum, sem ýmsir vilja nú mæta með vopnum? Þeir menn, sem leggja eindregið með vopnun skipanna, gæta þess ekki, að þjóðin er upp alin og uppfrædd, mann fram af manni um vopn- laust öryggi. Þekkingarleysi þjóðarinnar á vopnun og vopnaburði er tvímælalaust, enda hefir ekki verið til í landinu nema fjárbyssur og nokkrar fuglabyssur, sem sérstakt leyfi hef- ir þurft að fá til að eignast. Svo á allt í einu að fara að vopna öll skip og bjóða sterkasta herveldinu í heiminum byrginn, á sjó og í lofti. Þetta mál er svo auðvelt í augum sumra manna, að það þurfi ekki nema tveggja til þriggja daga æfingu í meðferð skotvopna, til að hafa sömu aðstöðu til sigurs og kafbátur eða flug- vélar, ef til árása kæmi. Að sjálfsögðu hafa skyttur kafbáta og flugvéla fleiri mánaða eða ára þjálfun í meðferð skotvopna, svo leikurinn yrði til að byrja með ójafn, hvað sem síðar yrði. Það er talið af kunnugum mönnum, að VÍKINGUR 12

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.