Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 16
30./3. Klukkan 10 árdegis birtist
þýzk fjögra hreyfia sprengjuflug-
vél yfir Reykjavík. Sveimaði hún
þar nokkra stund og hvarf siðan í
suðurátt. Flugvélin sleppti ekki
neinum sprengjum. Skotið var á
flugvélina úr loftvarnabyssum
brezka setuliðsins, en ckkert skot-
anna hæfði.
*
1. /4. Togarinn „Hilmir" bjarg-
aði í síðustu Englandsför sinni 10
mönnum af norska olíuflutninga-
skipinu „Betuin".
*
Mokafli hefir verið undanfarna
daga á togarana, sem nú stunda
saltfiskveiðar.
*
2. /4. Brann til kaldra kola i-
búðarhús á Strönd í Seyðisfirði
eystra.
*
4. /4. Skipuð hefir verið að til-
hlutan barnaverndaráðs, bæjar-
stjórnar Reykjavíkur og Rauða
kross íslands, sjö manna nefnd til
þess að hafa með höndum undir-
búning að brottflutningi barna úr
kaupstöðunum í sveit í sumar.
*
5. /4. Áttræður Kristleifur þor-
steinsson sagnaþulur á Stóra-
kroppi í Reyklioltsdal.
*
0./4. Loftvarnanefnd Reykjavík-
ur hefir nú skift bænum í 60
hverfi og sett þar á stofn hjálpar-
sveitir til aðstoðar ef til loftárás-
ar kann að koma.
*
7. /4. Við allsherjar framtalið,
sem framkv, var 2. des. s. 1. reynd-
ist íbúatala landsins vera 121.348.
*
Togarinn „Gulltoppur" bjargaði
33 skipbrotsmönnum, sem voru að
velkjast í björgunarbáti 45 sjóm.
út af Reykjanesi. Voru mennirnir
af enska skipinu „Beaverdale".
*
Komu á land á Öndverðarnesi
32 skipbrotsmenn af sama skipi.
*
8. /4. 16 norskir skipbrotsmenn
lentu á Sandi.
9. /4. Íslendingarnír þórhallur
Pálsson og Sigurður Finnbogason,
sem Bretar tóku fasta i fyrrasum-
ar og fluttu til Englands, hafa nú
verið látnir lausir og eru komnir
heim.
*
10. /4. Haldin minningarathöfn í
dómkirkjunni í Reykjavík um
mennina, er létu lífið, þegar
„Reykjaborg" var skotin í kaf.
*
11. /4. Andaðist í Reykjavík
Georg Ólafsson bankastjóri.
*
15. /4. Tveggja ára stúlkubam
að Brúnum undir Eyjafjöllum féll
í vatnspott og skaðbrenndist svo,
að það beið bana af.
*
16. /4. Fór fram í Víkurkirkju í
Mýrdal jarðarför þriggja þeirra
manna, er þar drukknuðu í lend-
ingu þann 6. f. m. Lík 2 þeirra
manna, sem þarna drukknuðu,
hafa ekki fundist enn.
*
18. /4. Radíó-vitarnir á Dyrhólaey,
Reykjanesi og Vestmannaeyjum
hafa tekið upp reglulegar útsend-
ingar eins og áður.
*
19. /4. Lauk skákþingi íslend-
inga, sem háð hefir vorið á Ak-
ureyri að undanförnu. Islands-
meistari varð Baldur Möller.
*
Maður að nafni Thor J. E. A.
Olsen ættaður af Siglufirði, 22 ára
að aldri, stal vöruflutningabifreið
inni í kolaporti í Reykjavík, ók
henni austur í Svínahraun,
hvolfdi henni þar út af veginum,
en varð sjálfur undir henni og
beið bana.
*
20./4. Samkv. frásögn Úlfars
þórðarsonar augnlæknis, sem ný-
kominn er heim frá Færeyjum,
hafa þýzkar flugvélar gert nokkr-
um sinnum loftárásir á eyjarnar,
aðallega þórshöfn. Nokkur skip
hafa Færeyingar misst vegna
árása þjóðverja.
*
22./4. Tilkynnt að komin væri
til Reykjavikur 4 manna sendi-
nefnd, brezk, til þess að semja við
rikisstjórnina um kaup á fiski.
*
24. /4. Ríkisstjórnin hefir tekið
upp umræður við fulltrúa út-
gerðarmanna og sjómanna um
það, að reynt verði að hefja sigl-
ingar að nýju, og hefir verið á-
kveðið að fela 3 manna nefnd, sem
í eru Björn þórðarson lögmaður,
Pétur Magnússon hrm. og Emil
Jónsson vitamálastjóri, að freista
]>ess að ná samkomulagi milli sjó
manna og útgerðarmanna um hér
að lútandi atriði.
*
Til styrktar sumardvalar barna
hafa safnast í Reykjavík fyrir for-
göngu Barnavinafél. „Sumargjöf",
í'úmar 57 þúsund krónur.
*
25. /4. Vigt á Akureyri nýtt og
vandað sjúkrahús.
*
26. /4. Kom til Reykjavíkur 3
möstruð skonnorta, með hjálpar-
vél, sem Magnús útgerðarmaður
Andrésson hefir keypt í Banda-
ríkjunum. Skipið er 277 smál.
brúttó. Framh. á bls. 25.
VÍKINGUE