Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Qupperneq 25
öðrum sem við sjóinn búa verður nú á að spyrja:
Hvernig stendur þá á því, að mjólkin, kjötið,
smjörið og eggin hefir hækkað svo gífurlega í
verði, sem raun ber vitni um? Er ekki t. d.
smjörið komið upp í tæpar átta krónur kílóið
og kostar ekki kílóið af kjötinu nokkuð á fjórðu
krónu? — Nú, og hvert hefir svo þessi verð-
hækkun runnið? Hefir hún ekki runnið til bænd-
anna — eða hefir hún kannske týnst á leiðinni
til þeirra frá neytendunum?
Að öllu athuguðu virðist manni svo sem bænd-
urnir hafi „fengið sér snúning“ í dýrtíðardans-
inum, engu síður en mennirnir á „sjávarbakk-
anum“, einkanlega þegar þess er gætt, að megn-
ið af þeirri landbúnaðarframleiðslu, sem nú er
seld við þessu gífurlega háa verði, er framleidd
við „normal“ skilyrði, þ. e. vetrarfóðurs búpen-
ingsins — heyjanna — er aflað með jafnódýrri
vinnu og var fyrir stríð, og allir muna eftir síld-
armjölinu, sem bændurnir fengu s. 1. haust fyrir
mjög skikkanlegt verð á kostnað sjómanna og
útgerðarmanna og fyrir þau „liðlegheit" við
bændurna virðist manni að J. J. ætti frekar að
þakka sjómönnunum heldur en hitt. —
f niðurlagi máls síns kemur greinarhöf. með
þá uppástungu, að myndaður verði nokkra mill-
jóna króna sjóður (Því brezki milljónasjóður-
inn, sem allt í einu fannst, hrekkur sjálfsagt
ekki nógu langt), sem varið verði til þess, að
hækka verðið til bændanna á framleiðsluvörum
þeirra. Og J. J. er svo sem ekki í vandræðum
með að benda á leiðir til að ná í þessar milljónir.
Það má bara, að hans hyggju, taka þær af fólk-
inu á „sjávarbakkanum“ með sérstökum skatti
á sjávarafurðir og sérstökum launaskatti. —
Það er svo sem ekki hætt við að hann gangi af
áttinni, hann J. J.! — Frá honum stendur alltaf
sami norðan-gjósturinn gegn sjómönnum og
fólkinu á „sjávarbakkanum“. Það á svo sem að
sjá um það, að sem minnst verði eftir af af-
rakstri sjómannanna og annara , sem við sjóinn
búa, frá þessu eina ári, 1940, sem segja má að
hafi verið þeim betra en meðallag um margra
ára skeið. Og það virðist líka eiga að hafa ein-
hver ráð með það, að reita svo af sjávarútvegn-
um, að honum verði ókleyft að endurnýja skipa-
flotann þegar styrjöldinni lýkur. —
En ætlar fólkið á ,,sjávarbakkanum“ að láta
þetta viðgangast? Eða hvenær ætlar fólkið við
sjóinn að láta sverfa til stálsins og taka upp
markvissa baráttu gegn norðangarranum frá
J. J. og hans sálufélögum. — Er ekki kominn
tími til þess?
Óblauður sjómaður.
Framh. af bls. 15.
26. /4. Fimmtugur Björgvin Guð-
nnmdsson tónskáld á Akureyri.
*
27. /4. Báðir fitstjórar dagblaðs-
ins „þjóðviljinn" í Beykjavík, þeir
Einar Olgeirsson alþingism. og
Sigfús Sigurhjartarson teknir
fastir af Bretum, og ennfremur
Sigurður Guðmundsson blaðamað-
ur, og voru þeir allir fluttir út í
skip og sendir til Englands. Einn-
ig var útkoma „þjóðviljans"
bönnuð.
*
28. /4. Sameinað Alþingi mót-
mælir á fundi sínum handtöku
ofangreindra manna og útgáfu-
banni þjóðviljans.
*
29. /4. Flugvélin T. F. Örn rakst
á hermannaskála í Vatnsmýrinni,
er hún var að hefja sig til flugs,
og stórskemmdist. Flugmann og
einn farþega, scm var í flugvél-
inni, sakaði ekki.
*
29./4. Undirritaður samningur
milli eigenda farmskipanna og
sjómanna um breytingar á kjör-
um sjómanna og aukið öryggi
skipanna. Samkv. þeim er búizt
við, að siglingar hefjist á ný áður
en langt um líður. Samningar
milli fiskiskipaeigenda og sjó-
manna munu skammt á veg
komnir.
Framh. af bls. 16.
22./4-. Barist af mikilli hörku i
Grikklandi, og segja þjóðverjar að
styrjöldinni þar sé að verða lokið.
*
25./4. Boosevelt hefir ákveðið að
stækka eftirlitssvæði Bandaríkj-
anna á Atlantshafi til öryggis fyr-
ir flutninga Breta.
Talið er að þjóðverjar séu komn-
ir að hliðum Aþenuborgar, en Bret-
ar tilkynna, að herir þeirra og
Grilckja hörfi skipulega undan.
*
26./4. Gríska ríkisstjórnin er flú-
in lil eyjarinnar Krít. Enn er bar-
isf í fjöllunum norðan við Aþenu,
cn svo virðist sem styrjöldinni í
Grikklandi sé að verða lokið með
sigri þjóðverja og ítala.
*
2S./4. Hernámi þjóðverja á
Grikklandi talið að vera um það
bil lokið. — Telja þeir sig hafa
tekið mikið herfang frá Bretum
og sökkt, mörgum herflutninga-
skipum þeirra, en Bretar telja að
brottflutningur herliðsins hafi
gengið slysalítið. —
*
þýzkar og ítalskar hersveitir
hafa tekið Sollum í Libyu. —
VÍKINGUR
25