Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1941, Side 32
þau hlunnindi, að setja malinn á réttan stað í and-
litið. Annar sagðist hafa leitað iiuggunar til skáld-
gyðjunnar og leyfði að aðrir nia;tti af njóta. Baðst
þó afsökunar á því, að myrkrið hefði verið svo mik-
ið þar sem liann lá í kojunni ,að hann liefði varla
grillt sínar eigin hugsanir.
Héí’. er svo kvæðið um ljósleysið:
J>á sem myrkrið meira þrá
en mæta Ijósgeislana.
Sjálfsagt er að senda þá
til sjós á togarana.
par eru margir meistarar,
myrkrið á sem trúa.
Og láta ei gufuleiðslurnar
ljósvélunum snúa.
pað er sagt um þessi fól,
þeir ef mættu velia.
Myndu þeir bæði mána og sól,
myrkravöldum selia.
„En“, bætti hann við brosandi, „þetta er ekki af
illum hug til vélstjóranna, sem margir hverjir eru að
öðru en þessu, mestu sómamenn, heldur sem trillur
við eintón tilverunnar til sjós“. Loftis.
Breyting til batnaðar
Ýmsir útgerarmenn, er átttu línuveiðaskip
með gufuvélum hafa undanfarið látið taka gufu-
ketil og vél úr skipunum og útbúið þau fyrir
dieselvélar. Við þessar breytingar eykst burð-
armagn skipanna að miklum mun, þar eð diesel
vél ásamt hæfilegum olíubirgðum er léttara en
gufuvél, ketill, kol og vatn. Fyrsta skipið, sem
komið er af stað eftir slíka breytingu, eftir að
útgerðarmenn almennt fengu áhuga fyrir þann-
ig gerðum umbótum skipa sinna, er M.s. „Búða-
klettur", eign þeirra Jóns Gíslasonar útgerðar-
manns og Sigurjóns Einarssoonar skipstjóra í
Hafnarfirði. Var sett í skipið 200/220 H.A.
tvígengis Sirron dieseivél smíðuð af The New-
bury Diesel Co. Ltd., í Englandi. ,,Búðaklettur“,
sem er 97 smálestir, fer nú röskar 8 mílur á
klukkustund fullfermdur, þótt vélin sé ekki knú-
in að fullu enn þá, og hefir um 50 smálesta
meira burðarmagn en fyrir þessar umbætur.
SJÓMANNABLAÐIÐ
VÍKINGUR
Útgefandi:
Farmanna- og fiskimannasamband Islands.
Ábyrgðarmaður:
Guðm. H. Oddsson.
Ritnefnd:
Hallgrímur Jónsson, vélstjól’i.
ÞorvarSur Björnsson, hafnsögumaður.
Henry Hálfdánsson, loftskeytamaður.
Konráð Gíslason, stýrimaður.
Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og
kostar árgangurinn 15 krónur.
Ritstjórn og afgreiðsla er á Bárugötu 2,
Reykjavík. Utanáslcrift: „Víkingur", Pósthólf
425, Reykjavík. Sími 5653.
Söngur netakvenna
Hníta net er hægur vandi,
hitt er stærra og dýrra hnoss;
að eiga visan uppi á landi
innilegan sjómanns koss.
Sínar skuldir sjómenn greiða,
sannarlega manna bezt.
Rjúfa sjaldnast orð og eiða,
afla þjóð og landi mest.
pá er sjaldan þörf að eggja,
þeir eru’ ekki að biðja um ró.
Hugrakkir á hafið leggja,
hræðast hvorki vind né sjó.
pó þeir kvenna þrái hylli
þeim er lagið margt í senn.
Hugtak þeirra er hreysti og snilli,
heita og vera aflamenn.
Hvar sem hug um hafið renni,
hátíðleg er vissa sú.
Finnast engin afreks-menni,
sem ekki leita styrks í trú.
Jónas Jónsson,
Grjótheimi.
Tríilofiincirhringar,
Borðbúnaður,
Tækifærisgjafir
i góðu úrvali.
Guðm. Andrésson, gullsmiður
Laugaveg 50 . Sími 3769
VÍKINGUR
32