Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Qupperneq 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Qupperneq 1
SlÓmnHHRBLnQlÐ U í K I H 5 U R ÚTGEF A.NDI: FARMANNA- OG FIS KIM A N N AS A M B A N D ÍSLANDS IV. árg. 1. tbl. Reykjavík, janúar 1942 GEIR SIGURÐSS ON: Við áramót Árið 1941 er liðið. Jólahátíðin og nýárshá- tíðin eru þær hátíðir, sem allir fagna, en þreytast eigi á, þótt þær sjeu hinar sömu eða svipaðar, ár eftir ár og öld eftir öld. En margt er það á hverju ári, sem líður, er menn lcysu að eiga kæmi fyrir aftur. Eitt er sameigin- legt fyrir alla, að ef sorgin og þrengingarnar berja að dyrum, þá er það hið mesta böl er viðkomandi getur hent. Á þessum tímum, hins æðisgengna hildar- leiks, sem nú er háður í lofti, á láði og legi, eiga margir um sárt að binda víðsvegar um heim allan, og eigi fer okkar litla þjóð var- hluta af afleiðingum hinna viltu hamfara, er það öllum landslýð kunnugt hvílíkar mann- fórnir hafa af oss verið krafðar fyrir sakir þess, og svo þegar hin erfiða barátta þjóðar- innar og þó einkanlega sjómannastéttarinnar, við vetrarveðrin hér á hafinu umhverfis land- ið, er einnig tekin til athugunar, og þau hörmu- legu slys, er af þeim leiðir, þá er eigi furða þótt menn um stund setji hljóða, en enginn skyldi örvænta, því ávalt kemur skin eftir skúr og bjartari og betri tímar renna upp, þegar ofviðrið hefir geysað um stund. Fyrir fáum dögum var eitt stórslysið að henda okkar litlu þjóð, er b.v. Sviði hvarf í djúpið, með 25 hinna vöskustu manna innan- borðs. Hætturnar eru alstaðar á hafinu nú á þessum tímum, enginn skyldi gera lítið úr þeim, né bregða mönnum um kjarkleysi, þótt á þær sé minnst, staðreyndirnar tala sínu máli. Þannig hefir þjóð vor orðið að sjá á bak yfir 130 hraustra manna í hafið á síðasta ári, það er mikill hópur og eftirsjár verður. Það þarf 1 ekki að taka það fram, að mikill meiri hluti þeirra féll fyrir morðtólum stríðsþjóðanna, það er sái't til þess að vita, að lítil þjóð, sem vill lifa í friði við alla menn, skuli þurfa að færa þessar fórnir, af völdum stríðsins, og ávalt er það þó sárast þeim ástvinum og ætt— mennum, er eftir lifa, en þeirra huggun er, að þeir létu lífið sem góðir synir ættjarðarinnar, við drengileg og heilbrigð störf í þágu lands og þjóðar. Þeir háðu sitt stríð, eins og góðum íslendingum sæmir, sú eina barátta, er við viðurkennum, að sé siðuðum mönnum sam- boðin, er baráttan fyrir lífi og brauði, til handa þeim, er land vort byggja, og barátt- an fyrir hugsjónunum um betri og bjartari framtíð til handa þjóð vorri og fósturjörð. All- ir þessir menn, er þannig létu lífið, hafa því unnið sigur, sigur lífsins sem er í því innifal- inn að starfa, öðrum til gagns og blessunar. Það, sem við því getum gert, er eftir lifum, er að þakka þeim vel unnið starf og biðja þeim hinum mörgu góðu drengjum fararheilla, til hins nýja heimkynnis, og þeim er harma látna ástvini, þreks og huggunar. — Okkar litla þjóð sem svo oft hefir átt í harðri baráttu, á nú í vök að verjast, frá mörgum, hliðum, alstaðar eru hætturnar og óráðnar gátur, sem að steðja, aldrei er eins og nú, þörf á þreki og samhug, einlægum vilja til þess að vernda og gæta þess, sem áunnist hefir í baráttu þjóð- arinnar, á undanförnum árum. Einasta frelsis- von lítilli þjóð til handa, er óeigingjarnt og einlægt samstarf á örlagastund, dæmin úti um heim eru deginum ljósari, um það, hvern- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.