Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Page 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Page 10
gagnvart þessari bakteríu og forherðing hug- arfarsins má enginn heiðarlegur maður vera hlutlaus. Sérstaklega situr það illa á afkom- endum þeirra manna sem yfirgáfu eignir og óðul af því þeir settu frelsið öllu ofar að láta sem sér komi núverandi átök í heiminum ekkert við. Að til skuli vera menn á íslandi, sem aðhyllast afnám sjálfsögðustu mannrétt- inda, er vissulega kaldhæðni örlaganna eftir allt sem á undan er gengið. Maður freistast til að spyrja eins og Jónas Hallgrímsson: Hvað er þá orðið okkar starf í sexhundruð sumur o. s. frv., en sú er þó bót í máli, að þessir ofbeldissinnuðu öfuguggar eru hér í allmiklum minnihluta, en hættulegir eru þeir öllu frelsi og sjálfstæði eigi að síður, sé þeim sýnd nokkur linkind eða undanlátssemi. Boð- orð eyðimerkurinnar: ,,Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“ er það eina, sem að haldi kemur í viðskiftum við þessa pilta. Allar líkur benda til, að Islands bíði björt og fögur framtíð í verzlun og viðskiftum við hin frjálsu og auðugu Bandaríki, svo framar- lega sem við sleppum við verstu hörmungar styrjaldarinnar og það vona allir góðir Is- lendingar, en uppblástnum og dólgslegum munkahettumönnum eða ofbeldissinnuðum þjóðarrembingum má ekki líðast að vaða uppi og eyðileggja framtíð landsins, því meðan hinn raunverulegi húsbóndi og lærifaðir þess- ara manna er önnum kafinn við að handsama sannleikann, hjá Moskva og Leningrad, þá láta þeir fá tækifæri ónotuð til þess að stofna til allskonar vandræða og óeiningar, sérstak- lega í sambandi við setuliðið og hernám það, sem Bretar neyddust til að framkvæma hér af illri nauðsyn. En munum það, að þegar þessir menn taka að grobba af eigin föðurlandsvináttu, þá er illt nærri, því þá vilja þeir fá hér innlenda of- beldisstjórn setta á laggirnar, en sniðna eftir erlendri fyrirmynd. Þegar þeir geta ekki orða bundist yfir undirlægjuhætti annara, við er- lent vald, þá þrá þeir ekkert heitara en að fá tækifæri til að flatmaga og velta sér um hrygg upp úr skarninu frammi fyrir erlendu valdi og harðstjórum. Þannig er innrætið; vörumst slíka, því sá andi, sem lýsir sér í þessu framferði er slíkur, að hann ætti ekki að þekkjast. Við lifum nú á alvarlegum tímamótum. Það hriktir í stoðum voldugra heimsvelda, fjöldi milljónaþjóða, sem áður nutu frelsís og sjálfstæðis, engjast nú sundur og saman und- ir járnhæl kúgarans. Frelsi allra smáþjóða er í óvissu og á hverfanda hveli, Þótt við njótum VÍKINGUR alls ekki fullkomins sjálfstæðis eins og sakir standa, þá er þó hlutskifti okkar allt annað og betra en annara hernumdra þjóða. Tvær af leiðandi þjóðum heimsins dvelja nú á meðal okkar, báðar hafa þessar þjtóðir það á stefnu- skrá sinni að losa hinar hernumdu þjóðir und- an okinu. Þar sem svona stendur á, virðist al- gerlega óþarft og óviturlegt að berja höfðinu við steininn eins og óþægur krakki, og hrópa sífellt um sjálfstæði, en vilja þó ekkert í söl- urnar leggja til þess að öðlast það. Þegar þar að kemur, endalaust nudd og nag um kúgun, þar sem engin kúgun er, virðist óþarfa ávani. Væri ekki ráðlegra að sýna þessum aðkomnu þjóðum, sem nú dvelja á meðal okkar, og hafa allt okkar ráð í hendi sér, að við meinum eitt- hvað með sjálfstæðistalinu og eigum skilið að ráða okkur sjálfir, þegar hægt verður að koma því við. Því hvað á blindur við bók að gera, þegar allt kemur til alls. Þetta ætti greinarhöfundur að athuga, næst þegar hann arkar út á ritvöllinn skrýddur lánuðum kufli hins óþekkta sjómanns. Grímur Þorkelsson. Leiðrétting: Hér með afturkallast óviðeigandi ummæli um kaupfélagið á Hvammstanga, sem birt voru með fréttum þaðan í októberhefti blaðs- ins síðastliðið haust. Blaðið hefir fengið að vita, að frásögn þess um fiskkaup félagsins voru röng. Kaupfélagið er ekki kaupandi að fiski, en tekur fisk aðeins í umboðssölu. Enn fremur var það rangt í þessari frétt, að hrað- frystihús sé á Hvammstanga. Það er ekki til á þeim stað, og hefir aldrei verið. ir Ofanritaða leiðráttingu Skúla Guðmunds- sonar pr. pr. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, birtum við með ánægju. Sjómannablaðið Vík- ingur hefir ekki og mun ekki verða svo for- hert, gegn því sem sannara reynist, að það hliðri sér hjá, að birta leiðrétingar á því, sem rangt skyldi meðfarið í því, einhverra orsaka vegna. Hinsvegar vill blaðið benda þeim á, er ef til vill þyrftu að leita einhveiTar leiðrétt- ingar hjá okkur, að alger óþarfi er að biðj- ast þeirra með feitletruðum undirstrikunum. Útflutningur frá ársbyrjun til októberlokal941. numið að verð- mæti í krónum 157.092.300 kr. Þar af eru sjávarafurðir 148.288.180 kr., landbúnaðarafurðir 8.757.180 kr. og ýmsar vörur 46.940 kr, 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.