Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Síða 11
mnc L sextugur 25. nóv. síðastliðinn varð Guðmundur Jóns- son, skipstjóri á línuveiðaskipinu Freyju, sex- tugur. Hann á svo langan og merkilegan sjó- manns- og skipstjóraferil að baki sér að frá- sagnar er vert. Guðmundur frá Tungu, er hann ætíð kall- aður. Auknefnið hlaut hann af Tungu við Skutilsfjörð í Norður-ísaf jarðarsýslu. Þar bjuggu foreldrar hans, Jón Ólafsson og kona hans Sigríður Halldórsdóttir. Þar ólst hann upp, og þaðan kom hann í skiprúm, 11 ára að aldri; réðist þá, vorið 1893 matsveinn á þilskipið Bolla frá Ssafirði. Síðan hefir hann ekkert sumar verið í landi, svo þau eru orðin 49 sumrin, sem hann hefir verið á sjónum, án þess hlé yrði á. Þegar Guðmundur var 17 ára, hóf hann vetrarróðra á opnum bátum. Var hann eftir það á sjónum vetur og sumar. Réri frá hausti til vors, en var á skútum á sumrum. Árið 1909 varð hann formaður á vélbát. Það var m.b. Héðirin. Hann var með Héðinn eitt ár, en varð þá stýrimaður á Hákarlagunnu, og síðan skip- stjóri á því skipi. Árið 1911 varð Guðmund- ur skipstjóri á m.b. Huldu, sem þá var með beztu vélbátum við Djúp. En 1913kom m.b. Freyja til ísafjarðar. Hafði Karl Olgeirsson verzlunarstjóri Edinborgarverzlunar á ísa- firði látið byggja þann bát í Svíþjóð. Varð Guðm. skipstjóri á ,,Freyju“ og meðeigandi skipsins. Var Freyja þá talin bezta og full- komnasta skip vélskipaflotans vestra. Var hann skipstjóri á Freyju í 12 ár, og varð þá landskunnur fyrir dugnað og aflasæld. Þegar Edinborgarverzlun á Isafirði lagðist niður, varð Guðm. skipstjóri á línuveiðaskip- inu Atla. Síðan eitt ár stýrimaður á l.v. Fróða. Og enn skipstjóri á l.v Pétursey. En árið 1932 keypti hann ásamt nokkrum öðrum l.v. Freyju og hefir verið skipstjóri á því skipi síðan. L.v. Freyja er minnsta línuveiðagufuskip fiskiflotans, 67 smál. brúttó, og var ekki í miklu áliti, þegar Guðm. tók við formennsku á henni. Hafði útgerð skipsins ekki fært eig- endum mikla gæfu. En síðan Guðm. tók við skipinu, hefiir miki'l gifta fylgt því. Hafa margir undrast það aflamagn, sem Guðm. hefir jafnan innbyrt í þetta skip, sem nú er fertugt að aldri. En ekki er minna um vert þá gæfu, sem skipinu hefir fylgt í öðrum efnum. Síðasta sumar var lítið síldarsumar, vertíð stutt og stopul. En Guðm. frá Tungu tíndi 11500 mál og tunnur upp í litlu Freyju þetta 49. sumar sitt á sjónum. Ber það eigi vott elju- leysis né glapa. íslenzkir skipstjórar hafa margir verið af- reksmenn í aflabrögðum. Er það að vonum talinn hcfuðkostur fiskimanna. Guðm. hefir verið þar í fremstu röð, svo að hann er lands- kunnur fyrir. Þó hefir honum fylgt önnur gifta, sem ekki er minna um vert. Hann hef- ir aldrei mist skip, og aldrei hefir farizt maður af skipi hans. Slíkum mönnum er bezt farið, sem bæði eru djarfir og forsjálir. Guðmundur er kvæntur ágætri konu, Krist- ínu Hansdóttur, sem er fædd og upp alin hér í Reykjavík. Þau hjónin eiga 4 börn upp kom- in og mannvænleg. Á sextugsafmæli Guðmundar, 25. fyrra mán. barst honum fjöldi árnaðaróska, og heimsóknir fjekk hann margra vina og sam- starfsmanna, og vinargjafir. Þar á meðal dýr- an grip, er skipverjar hans og meðeigendur færðu honum. Guðmundi er svo farið, að hann er stiltur og yfirlætislaus, en skörungur í framkvæmd, fastlyndur og fastorður. Hinn bezti þegn, hvenær sem á reynir. Sigurður Kristjánsson. 11 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.