Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Side 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Side 22
Guðrn. Júní Ásgeirsson. hver ókyrrð var í Guðmundi þegar fiskur var tregur. Það var ekki ótítt á síldveiðum að hann sæist um morguninn út af Horni, en að kveldi næst dags, austur undir Langanesi, í eii'ðarlausri leit að hinum gyllta fiski. Nú síðast hefir Guðmundur stýrt skipi á ófriðar- svæðinu í fiskflutningum. Það er verkefni, sem honum fellur vel. Hann hefir reyndar engin réttindi til þess, eii gerir það samt, — með ,,leppi“. ,,Pungaprófið“, hefir orðið mörgum ís- íirzka sjómanninum ónógt. Það dugði vel til að byrja með, en skipin hafa stækkað örara en þau réttindi, sem það veitir. Það er hægara sagt en gjört fyrir fullorðna menn, sem orðn- ir eru ráðsettir og búnir að stofna heimili, að fara að setjast aftur á skólabekkinn, þegar þeim býðst stærra skip. Ef ísfirðingar og aðr- ir Vestfirðingar vilja gera eitthvað fyrir sína ungu menn, þá eiga þeir að tryggja sér heimavistardeild við hinn nýja fyrirhugaða sjómannaskóla í Reykjavík, og létta þeim á allan hátt dvölina þar. En ,,pungaprófin“ eiga þeir að leggja niður, og róa með ,,punga- prófs“ skírteinin út á opna Hornavík, og varpa þeim þar ofan í sextugt Djúpið. Hér hefir aðeins lítilsháttar verið skýrt frá upphafi vélbátaútgerðarinnar á ísafirði, og sumum þeim mönnum, sem hún skapaði fram að lokum fyrri heimsstýrjaldar. ísafjörður var þá orðinn blómlegur bær með fjörugu at- hafnalífi, og þangað flykktust menn í at- vinnuleit hvaðanæfa af landinu. Nokkru eft- ir að stríðinu lauk, urðu snögg þáttaskifti og kyrrstaða um hríð. Ekki af því, að dregið hefði af ísfirðingunum, heldur vegna þess VÍKINGUR ísafjörður að þeir spiluðu of djarft, lögðu allt á borðið á eitt númer, og — töpuðu. Síldin, sem menn vonuðust til að yrði þeim hinn mesti bjargvættur, varð þeim að fótakefli og lágu til þess ýmsar orsakir, er ekki verða raktar hér. Menn, sem voru efnaðir en hefðu orðið auð- ugir, urðu fátækir á einni nóttu. Milljónir fóru forgörðum. Margir urðu og til að ryðja um þeim vagninum sem hallaðist. Upplausn kom í lið ísfirðinganna. Ifinir eftirsóttu bát- ar þeirra og sjómenn, dreifðust um allan sjó. Mikill flokkadráttur og kurr varð með mönn- um, en framtaks eðlið leið ekki undir lok, heldur hertist í þeirri deiglu og tók á sig nýj- ar myndir. Menn tóku sig saman um að láta „verkin tala“, og nú keppa ísfirðingar um hver ,,flokkurinn“ geti smíðað betri báta. ísfirðingar hafa aftur eignast samstæð- asta og bezta mótorbáta flotann á landinu. Henry Hálfclansson. Þó ekki byrji árið vel, og enginn fiskur veiðist, og yfir gangi austan él, úr því bráðum greiðist. J. B. Af suðaustri er satans él, svona tíð mér leiðist. Ekki byrjar árið vel, enginn fiskur veiðist. G. E. 22

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.