Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1942, Page 23
Endurnýjun fiskiflotans Engnm þeim manni, er eitthvað hugsar fram í tímann, lætur sig varða hag Reykjavíkurbæj- ar, blandast hugur um, að atvinnuleysi muni gera hjer stórt strandhögg að styrjöld þeirri lokinni, er nú herjar heiminn, ef alt verður látið reka á reiðanum, eins og fullt útlit, er fyr- ir. Jeg geri fastlega ráð fyrir því, að þótt allar fjehirslur ríkis, bæja og einstaklinga yrðu upp- urðar, til þess að halda uppi atvinnubótavinnu eða þegnskylduvinnu,, þá yrði afrakstur sá, sem af slíkum atvinnuháttum fengist heldur ljettvægur og hrykki skammt til þess að borga með allar þær greiðslur, sem við árlega þurf- um að inna af hendi fyrir brýnustu nauðsynj- ar. Það er ekki svo lítil fúlga, og ekkert leyfi höfum við til þess að búast við því að hjer komi til með að geisa nein sparnaðaralda á næst- unni. Því síður að þ.eir sem ráða innflutningn- um komi til með að vitkast í náinni framtíð, og læri að greina hismið frá kjarnanum. Um iðnaðinn íslenska er það að segja, eins og allir vita, að hann er ekki ennþá kominn á þann rekspöl, að um mikinn útflutning geti verið að ræða, er þýðingu hefði sem gjaldmið- ill. Þar kemur aðeins sá iðnaður til greina, sem byggist á því, að hægt sje að sækja afla- föng í skaut Ægis. Þá er það landbúnaðurinn. Hann er nú held- ur lítils megnugur til þess að bjarga við inn- flutningi við okkar hæfi. Það neitar því eng- inn, að bændunum íslensku sje alls góðs unn- andi, og að þeirra störf hafa ekki verið betur launuð en önnur störf þjóðfjelagsins. En leitt er til þess að vita, að einhver allra viðbjóðs- legasti skattur, sem á okkur er nú lagður, sem við sjóinn lifum, er verðlag það á landbúnað- arafurðum, sem malarbúinn verður að greiða fyrir slæma mjólk, knapplega mældan rjóma, illa hnoðað smjör, misjafnt og ónákvæm’ega flokkað kjöt. Og allt eru þetta vörur, sem engin þjóð í heimi vildi greiða fyrir þriðjung þess verðs, sem við erum lögþvingaðir til að greiða út í hönd, og sjá því allir, hve skattur þessi er gíf- urlegur að vöxtum. Þegar augsýnilegt er, að fjárhagslega hagkvæmara væri að sækja og kaupa landbúnaðarafurðir þær, sem flytjan- legar eru langleiðir, alla leið til Argentínu, 23 Á þessu heimskulega ástandi fást engar bæt- ur, fyr en sjómenn og útgerðarmenn hafa kom- ist að reun um, að það sje eins affarasælt fvrir þá að ráða einhverju sjálfir, en láta ekki þeim fjandsamleg öfl flestu ráða i þjóðfjelagi okkar. Eftir öllum staðháttum í landi okkar, er ekki annað betra sem við getum gert en sækja sjóinn, viljum við halda áfram að lifa sem framfara þ.jóð, án þess að komast í g.jaldþrota aðstöðu, eins og á hriflungaöldinni. Ekkert vantar okkur eins tilfinnanlega eins og góð, stór nýtísku fiskiskip, bæði togara og línuveiðara með dieselv.jelum. Við eigum sæmilegan flota af smærri og miðlungs fiskisklpum, og gætum kannske fljót- lega aukið við þann skipastól með innanlands byggingum, en við eigum ekki nema eitt skip, sem hugsanlegt vsgri að gæti með góðum á- rangri stundað fiskveiðar á f.jarlægum miðum. Það er hægt að fiska á stórum dieselvjelar- skipum á tvennum miðum, bæði heima og fjar- lægari, en litlu fleyturnar eru aftur á móti bundnar við heimamið eingöngu. Stóru skipin er hægt að nota til flutninga og síldveiða, þó la ngt þurfi að sækja. Fiskur og síld geta lagst frá, fjarlægst grunn mið, máske tugi ára, hver veit. Hvar erum við þá staddir með smáfleyturnar einar saman? Endurnýjun stórskipa fiskiflotans er svo að- kallandi, að ilest annað verður að þoka fyrir þeirri þ.jóðarnauðsyn, sem einnig er stærsta hagsmunamál okkar bæjarfjelags, allt verður að gera sem mögulegt er, til þess að okkur ekki skorti nægilega mörg nýtísku fiskiskip af þeim stærðum og gerðum, er okkar færustu menn á þessu sviði álíta að okkur komi að sem víðtækustum notum. Við sjómenn eigum heimtingu á, að þessu máli sje gaumur gefinn, og því fyr því betra. Langmestur hluti gjaldeyris þess, sem við höfum yfir að ráða, er fenginn fyrir sjófang það, er íslenskir fisk'menn allt í kringum hólm- ann hafa flutt að landi. Fyrir þetta strit á land- ið orðið fyrir skuldum. Sjómenn og útgerðar- menn hafa ekki haft ráð gjaldeyrisins í sín- um höndum, þess vegna stimplast það á þá menn, er með þau völd hafa farið, hvernig VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.