Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Side 26
og Magnúsar Össurarsonar skipstjóra, sem hafði siglt Gretti upp. Á Gretti hjá Helga réðist Guðmundur sem háseti, og var þar í þrjú ár. Frá Helga af Gretti réðist Guðmundur sem háseti á þilskipið „Flateyrina" til Ebenezers Sturlusonar og var þar í eitt ár. Guðmundur giftist 10. desember 1891, Helgu Þórar- insdóttur. Foreldrar Helgu voru hjónin Þórarinn og Kristín frá Látrum í Mjóafirði við ísafjarðardjúp. Seinna bjó Kristín, þá orðin ekkja, að Stað í Súganda- firði. Með Helgu konu sinni eignaðist Guðmundur eina dóttur barna, Andríu að nafni, og er hún nú hús- freyja í Vatnadal fremri í Suðureyrarhreppi, gift Veturliða Guðnasyni. Heimili þeirra Guðmundar og Helgu var á Flateyri og þá byrjaði fyrst æfistarf Guð- mundar fyrir alvöru. Þá fyrst með því að vera sumpart formaður á árabátum eða stýrimaður á þilskipum, og skipstjóri var hann á tveimur þilbátum Ásgeirsverzl- unar, Síldinni og Bolla. Stýrimaður var Guðmundur hjá þessum skipstjórum: Kjartani Rósinkranssyni á skonoi'tunni Guðnýju frá Þingeyri þrjú ár, og hjá sama skipstjóra á Lovísu frá ísafirði í eitt ár, hjá Helga Andréssyni á Sigríði frá ísafirði þrjú ár og hjá Ebeneser Sturlusyni á Flat- eyrinni eitt ár. Að Selakirkjubóli flutti Guðmundur og bjó þar í fimm ár. Þaðan flutti hann aftur til Flateyrar og átti þar heima til 1913, að hann flutti að Suðureyri í Súgandafirði. Konu sína, Helgu, missti hann á Flat- eyri 1911. Á Suðureyri dvaldi Guðmundur í nokkur ár sem húsmaður, en þaðan fluttist hann að „Hraunprýði", sem er hjábýli frá Vatnadal. Þar tók hann saman við ekkjuna Guðrúnu Sigurðardóttur, ekkju eftir Guðna sál Egilsson, sem drukknaði með Sturlu Jónssyni frá Stað 28. febrúar 1898. Hefur Guðmundur búið með henni síðan, eða í 17 ár. En vegna ellilasleika fluttust Guðmundur og Guðrún frá Hraunprýði, yfir ána, sem aðskildi heimilin, til dóttur sinnar Andríu og manns hennar, Veturliða, sonar Guðrúnar. I heimild frá hendi Guðmundar sjálfs í lifanda lífi getur hann þess sérstaklega, að sér hafi liðið ágætlega fram. til síðustu stundar, en tekur þó fram, að sól- ríkustu dagar æfi sinnar hafi verið þau 20 ár, sem hann átti samfylgd með konu sinni, sem hafi allt gert sém hægt hefði verið til að honum gæti liðið1 sem allra bezt, en þóttist þó aídrei gera það svo vel sem hún vildi gert hafa, og þakkar Guðmundur henni mjög innilega alla þá umönnun og sjálfsafneitun sem hún hafi látið sér- í té. Að endingu vil ég, sem gamall félagi Guðmundar Andréssonar rifja upp og setja á pappírinn nokkrar línur um þau kynni. Skal þess þá fyrst getið, að ég tel Guðmund hiklaust til hóps hinna beztu sjómanna Vestfjarða á tímum skútualdarinnar. Á tímum hákarlaveiðanna stóð hann mjög framarlega í hóp hinna vöskustu drengja er þar komu við sögu, enda þá í blóma lífsins og jafnan eftir- sóttur á skip sem gengu til þeirrar veiði, meðan hún var stunduð hér frá Vestfjörðum. Fyrstu veruleg kynni mín af Guðmundi voru þau, að ég var háseti hans tvær haustvertíðir á áraskipi. Var róið frá Flateyri. Stóðu þá sem hæst hvalveiðar Norðmanna hér við land, og þá ekki sízt frá Sólbakka í Önundarfirði. En hvalveiðinni fylgdi mikil fiskigengd inn á alla Vestfirði. T. d. skal þess getið, að bæði þessi haust, sem hér um ræðir, var Önundarfjörður fullur af fiski og síld fram undir jólaföstu; var þá stundaður sjór af miklu kappi af flestum heimilisfeðrum kring um allan fjöifiinn, róið frá þeim bæjum, sem hægt var að róa frá, og áttu flestir önfirzkir bændur sínar eigin fleytur, og réru þeim frá heimilum sínum, þar sem því varð við komið. Ekki var samt fiskgengt lengra inn en að Holtsodda, því fyrir innan er fjörðurinn eintómt grunnsævi, og viðast hvar reiðfær um fjöru. En utan við Holtsoddann var vel um fisk, og sóttu menn þangað með lóðir sínar af innstu bæjunum, utan við miðju fjarðarins. En bændur, sem áttu heima innan við Holt, og ekki höfðu tök á að stunda veiðar frá bæjum sínum, gerðu sig þá út á Flateyri, stunduðu sjó þaðan og sóttu þá aðallega út á ytra hluta fjarðar- ins, og þeir, sem réru sex manna förum, sóttu venjulega út til hafs er veður leyfði, en lögðu annars lóðir sínar hér og hvar um allan fjörðinn ef rysja var í veðri. Bátur sá, er Guðmundur átti að hálfu leyti, og var formaður á, var sex manna far; hafði hann jafnan að miklu leyti valda menn á bát sínum, enda var hann orðlagður dugnaðarforkur og reyndur sjómaður, enda sótti hann sjó enn kappsamlegar en flestir aðrir. Þessi haust, sem ég var háseti hans vorum við aflahæstir allra Önfirðinga, og aldrei hlekktist okkur á, og þurftum aldrei að hleypa frá vör enda þótt oft kostaði það mikla baráttu að ná landi, því Önundar- fjörður er erfiður til landtöku, ekki síður en ísafjarðar- djúp, í útveðrum, og ekki voru þá vélarnar komnar til sögunnar. Næstu kynni mín af Guðmundi urðu eftir að hann flutti hingað til Súgandafjarðar. Vorum við þá oft- samskipa á bátum héðan. Gafst mér þá oft tækifæri til að kynnast dugnaði og sjómennsku Guðmundar, og juku þau kynni mín ekki lítið virðingu mína fyrir ágæti hans og sjómannshæfileikum. Er ekki að orð- lengja það, að ég tel Guðmund tvímælalaust einn hinna fjölhæfustu, lægnustu og snarráðustu sjómanna, sem ég hefi kynnzt. Og að endingu þetta: Þökk þér, látni félagi, fyrir allar samverustundir okkar, og ekki sízt fyrir sjó- mannsafrek þín og hve giftusamlega þér jafnan tókst að skila fleyi þínu og félögum þínum heilum til hafnar. Að lokum kveðja frá gömlum félaga: Það er sorgarstund í salarkynnum. Hér er hetja prúð hnigin til foldar. Enn hefur sigð dauðans sárlega skorið lífsþráð langrar ævi. Halldór GuÖmundsson. 144 VÍ Kf NGU R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.