Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 1
SJÓMANNABLAÐIÐ EFNISYFIRLIT Jónas Guðmundsson: Fiskur og olía Lífið er saltfiskur Rætt við Tómas Þor- valdsson forstjóra Laumufarþegar Hvað er vöruþróun Sjómannadagurinn 1976 Uppreisnin á Bounty Aðalfundur Stýrimannafé- lags Islands Ellingsen 60 ára o. fl. SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: F.F.S.I. Ritstjórar: Guðm. Jensson (áb). og Jónas Guðmundsson. Ritnefnd: Guðm. Ibsen, Jón Wium, Ólafur Vignir Sigurðsson. Varamenn: Ásgrímur Björnsson, Guðm. Jónsson, Guðni Sigurjónsson. Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: Sjómannablaðið Víkingur, Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 15653. Setning, umbrot, filmuvinna: Prentstofa G. Benediktssonar. Prentun: Isafoldarprentsm. h.f. Árg. kr. 2.500.00 VÍKINGUR VÍKINGUR 38. ÁRGANGUR — 6.-7. TÖLUBLAÐ 1976 Jónas Guðmundsson: Fiskur og o/ía Olíukreppan í heiminum hafði geysileg áhrif á verðþróun í mörg- um ríkjum heims. Lönd sem ráða yfir bróðurpartinum af olíufram- leiðslu heimsins tóku sig saman og margfölduðu verð á jarðolíu með þeim afleiðingum að efnahags- ástandið í heiminum breyttist Að vísu höfðu ýmsir spáð arabaríkjunum meiri árangri en þau í rauninni náðu, en ný hag- fræðiregla skaut upp kollinum, regla sem hagfræðingar höfðu ekki séð fyrir, sumsé, að sá sem eignst alla heimsins peninga verður i rauninni auralaus. Verðhækkan- irnar, sem fylgdu í kjölfar olíu- kreppunnar bitnuðu harðast á þeim sem mest keyptu af fram- leiðsluvörum iðnríkjanna og kaupendurnir voru að verulegu leyti arabaríkin, sem stóðu fyrir olíukreppunni, og gróði þeirra varð því ekki eins mikill og efni stóðu til. Olíukreppan hefur legið þungt á líflæknum efnahagslífsins, hag- fræðingum, fjármálamönnum og stjórnmálamönnum og menn renna augunum í ríkara mæli til samræmdra aðgerða þjóðanna. Voldugar þjóðir ráða ráðum sín- um og reyna að styrkja gjaldmiðla sína til þess að hindra brask og ó- eðlilegar sveiflur og Sameinuðu þjóðirnar gengust nýverið fyrir ráðstefnu í Afríku þar sem meðal annars var rætt um hráefnisverð á heimsmarkaði, en fátæk lönd, sem flytja út málma og önnur óunnin efni til iðnaðar, hafa tilhneigingu til þess að fara svipaðar leiðir og olíuríkin fóru í von um bættan hag. Auðlindir þessara landa eru forsenda iðnaðarframleiðslunnar á Vesturlöndum, ekki síður en olían, sem margfölduð var í verði. Islendingar hafa ekki til þessa sinnt alþjóðapeningamálum neitt verulega, enda peningalausir menn á þann mælikvarða. Þó mættu þeir hyggja betur að nýjum leiðum í þessu efni. Þegar 200 sjó- mílna reglan hefur hlotið viður- kenningu ríkja heims, mun staðan breytast nokkuð. Efnahagsbanda- lagið hefur sýnt að það kann vel að notfæra sér aðstöðu sína til efna- hagslegra þvingana og nægir að benda á bókun sex því til sönnunar og brot á samningum um fríversl- un með löndunarbanni á ísvarðan fisk í Bretlandi og Þýzkalandi, og það er ekki verið að fara í neinar felur með þessar aðgerðir. Það sem athyglisverðast er virðist þó það, að íslendingar hafa tekið upp ein- angrunarstefnu til andsvara. Tala 185

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.